8. maí 2008 |
Allt í plati |
Að horfa á spennuþátt er góður siður. Öllu verri siður er það hins vegar hjá framleiðendunum að láta þekktasta gestaleikarann í viðkomandi þætti leika morðingjann. Er ég horfði á einn af mínum uppáhalds í kvöld, CSI - Criminal Intent, var ég ekki í neinum vafa um að persóna Brooke Shields væri flagð undir fögru skinni; hinn blóðþyrsti slátrari.
Ég hélt það allan þáttinn; sá alveg í gegn um hvernig handritshöfundar plötuðu áhorfendur til að halda að pabbinn morðinginn. Ég hélt það alveg þar til í ljós kom að hann var illmennið í raun. |
posted by ErlaHlyns @ 23:52 |
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|