Hugleiðingar konu v. 6.0
 
23. apr. 2008
PlasmaBell in da house


Að fjölskyldunni frátalinni hef ég ekki búið með neinum jafn lengi og Báru Kristínu. Við bjuggum saman í þrjú ár. Þegar hún semur lög kallar hún sig reyndar ekki Báru heldur PlasmaBell.

Bára lagði stund á myndlist og ljóðasmíð þegar við bjuggum saman. Nú hefur hún fært sig upp á skaftið og semur tónlist. Tónsmíðarnar má nálgast á Mæspeis.

Að kvöldi Sumardagsins fyrsta spilar hún á Organ. Eða eins og segir í fréttatilkynningunni:

Weirdcore kvöldin eru til að kynna þig fyrir jaðar raftónlist eins og hún gerist best. Fram koma tónlistarmenn sem hafa verið að spila í mörg ár í bland við unga og óreynda sem eru jafnvel að stíga sín fyrstu skref, þetta býður uppá mikla fjölbreytni og maður veit eiginlega aldrei hverju maður getur átt von á. Fyrir hvert kvöld reynum við að hafa dagskránna þannig að þetta flæði vel, veljum saman tónlistarmenn sem okkur finnst eiga vel saman og röðum þessu upp þannig að úr verði heilsteypt prógramm, byrjar oft rólega og endar svo í fullu fjöri.

Kvöldin eru haldin einu sinni í mánuði á Organ sem er frábær tónleikastaður bæði hvað varðar hljóð og umhverfi. Semsagt frábær upplifun á besta stað í rvk!
Næsta kvöld 24 apríl munu koma fram: Plasmabell, Skurken og Yagya(aka. Plastik)

Plasmabell (Bára Kristín) hefur verið að ryðja sér rúms í netheimum sem afbragðs ambient tónskáld og mun flytja seiðandi umhverfis tóna og sjá um að dulmagna andrúmsloftið fyrir kvöldið.

Yagya, réttu nafni Aðalsteinn Guðmundsson hefur lengi fengist við Melódíska Minimal Techno tónlist. Tónlist hans einkennist af draumkenndum og undurfögrum taktflaumi og andrúmsloftið sem hann skapar er í senn klassískt, rómantískt og rafrænt.

Stjarna Skurken steig hvað hæst rétt fyrir aldamót þegar hann var sem iðnastur við spilerí. Hann er nú mættur aftur til leiks með snilldarinnar raftónlist og gestir mega búast við undurfögrum melódíum og góðum töktum frá honum.

Dagskrá hefst kl: 21:00 og það kostar 500 kr. inn
posted by ErlaHlyns @ 23:11  
1 Comments:
  • At 24/4/08 00:15, Anonymous Nafnlaus said…

    Einusinni tók hljómsveitin mín þátt í einhverju svona rafdæmi og ég þverneitaði að vera með á tónleikunum, fannst við alls ekki eiga heima innan um þessa álafossúlpuklæddu rafgaura, enda hlyti markmiðið með tónleikahaldi að vera að gera sig sýnilegann og sætann fyrir hinu kyninu, ekki að hafa einhverja bólugrafna nörda á eftir sér spyrjandi hvernig synthesæzera við notuðum og hvernig stýrikerfi væri í laptoppnum okkar.. Lítið rokk í því sko!

    Valtýr/Elvis2

     
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER