Hugleiðingar konu v. 6.0
 
20. apr. 2008
Dauði og eymd í uppáhaldi
Í dag fjalla öll lög um losta og ríðingar. Það er annað en þegar ég var unglingur og öll lögin sem ég hlustaði á fjölluðu um dauða og eymd.

Metallica var í sérstöku uppáhaldi hjá okkur vinkonunum. Ein okkar átti kött sem hún nefndi James Hetfield, í höfuðið á söngvara Metallica. Nafnið hans fékk að standa á póstkassa heimilisins.

Ég vissi alltaf að ég elskaði Metallica tónlistarinnar vegna því í öllum hinum hljómsveitunum sem ég hélt uppá var einhver sem mér fannst sjúklega sætur. Meðlimir Metallica fannst mér allir ljótir.

Hér er gullmoli, um mann sem lifir í helvíti eftir stríðsátök. Með þessu söng ég hástöfum, fimmtán ára gömul.

posted by ErlaHlyns @ 16:54  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER