10. apr. 2008 |
„Óspakmæli og örsögur“ |
Þegar ég sá að stórt umslag merkt Háskóla Íslands, en þó einnig mér, hafði komið inn um lúguna datt mér fyrst í hug að þarna væri enn ein könnunin á ferð þar sem ég væri spurð spjörunum úr hvort ég noti munnskol, við hvaða olíufélag ég skipti og hversu oft í mánuði ég stundi kynlíf.
Því kom það mér skemmtilega á óvart þegar ég opnaði umslagið og fann þar fyrir bókina Fréttir frá mínu landi. Ég fell sumsé í flokkinn vinir þessarar síðu og fékk bók að launum fyrir skjót viðbrögð.
Í Mogganum: Stéttaskipting og græðgi komin upp í þjóðfélaginu
Það var einmitt mín tilfinning líka.
... og fleira gotterí. |
posted by ErlaHlyns @ 20:05 |
|
4 Comments: |
-
Hvernig gerist maður eiginlega vinur Ármanns? Ég er með hann á feed-listanum mínum en ég veit ekki hvort hann viti það. Síðan leyfir hann ekki komment.
-
Valur: Þetta er bara leikur að orðum. Ég er hvorki vinur Ármanns né sérstakur vinur síðunnar hans. En við erum þó engir óvinir.
Ármann hefði án efa sent þér eintak af bókinni hefðir þú einfaldlega verið einn af þeim 25 fyrstu sem sýndu áhuga á henni.
Vinir síðunnar eru einfaldlega þeir sem hana lesa (að ég tel...).
-
Ekki virðist hann hafa sent mér bókina svo varla er ég sérstök vinkona hans. Ég þekki þá bræður ekki einu sinni í sundur. Svo er það álitamál hvor hann hafi mátt misnota almannafé með því að senda fólki bókina á kostnað Háskóla Íslands. Það hefði örugglega verið tekið á slíku á Norðurlöndunum.
-
Anna: Ef þú smellir á tengilinn í færslunni sést að óska þurfti eftir bókinni. Hvað sendinguna varðar hef ég oft sent einkapóst í umslagi frá fyrirtækjum sem ég vinn hjá en sjálf borgað frímerkið. Ég ætla því að leyfa Ármanni að njóta vafans. Það getur meira að segja vel verið að ég sé sú eina sem fékk umslag merkt háskólanum.
|
|
<< Forsíða |
|
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|
Hvernig gerist maður eiginlega vinur Ármanns? Ég er með hann á feed-listanum mínum en ég veit ekki hvort hann viti það. Síðan leyfir hann ekki komment.