28. mar. 2008 |
Vér mótmælum öll |
Ég var nánast klökk þegar ég varð vitni að mótmælum vörubílstjóra í dag. Mér finnst það svo óendanlega uppörvandi þegar fólk tekur sig saman og berst fyrir sameiginlegum hagsmunum. Mér er næstum því alveg sama hverjir þeir hagsmunir eru. Samkenndin og hugrekkið er það sem snertir hjarta mitt.
Bílstjórarnir drápu á bílunum og söfnuðust saman fyrir framan fremstu bílana. Lögreglan kom og skrifaði sektarmiða handa nokkrum þeirra. Þeir sem fengu ekki sekt hrópuðu: Heyrðu, ég er á þessum bíl *bendir*. Ég þarf líka að fá sekt! Það er ekki rétt að sekta bara suma.
Ég sé trukkabílstjórana alveg fyrir mér á kaffistofunni fyrir nokkru: - Við bara getum ekki látið valta svona yfir okkur lengur. - Nú látum við í okkur heyra. Þessi framkoma er ólíðandi. - Strákar, drífum bara í þessu. Við höfum engu að tapa.
Þeim hefur líka örugglega liðið svakalega vel eftir á, yfir að hafa gripið til aðgerða. Ég er bara svo stolt af þeim.
Mér finnst líka yndislegt hvað fólk sýnir þeim mikinn stuðning. Ég sem hélt að Íslendingar væru engir mótmælendur í sér. Það eru bara einstaka fáráðlingar og leiðarahöfundur Moggans sem setja út á þetta.
Á spjallvef Barnalands las ég þetta gullkorn: Á hverjum bitnuðu mótmælin í Ártúnsbrekkunni gær? Þau bitnuðu á mömmum og pöbbum að flýta sér að sækja börnin sín á leikskóla og í gæslu. Engum öðrum. |
posted by ErlaHlyns @ 20:48 |
|
3 Comments: |
-
Jámm, þetta var bara snilld. Fólk er ekki upp til hópa fúlt, einmitt vegna þess að flestir eru búnir að fá upp í kok á ástandinu, svo má brýna deigt járn að bíti.
-
Ég var mjög sátt við umferðatafir í dag þegar ég sá að flutningabílar voru ástæðan (við Kringlumýrarbraut og Miklubraut). Ég meira að segja brosti þegar löggimann reyndi að skamma mig fyrir að tala í símann og keyra, ég benti honum að vísu á að bíllinn hjá mér væri STOPP! Fleiri mótmæli takk!!! Næst er það vonandi matvöruverð
-
Í tilefni dagsins eigum við svo að syngja hástöfum: Ísland úr Nató, Ísland úr Nató, Ísland úr Nató og herinn á brott...
|
|
<< Forsíða |
|
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|
Jámm, þetta var bara snilld. Fólk er ekki upp til hópa fúlt, einmitt vegna þess að flestir eru búnir að fá upp í kok á ástandinu, svo má brýna deigt járn að bíti.