25. mar. 2008 |
Synd með sundið |
Öll hugsun virtist fara út um þúfur í dag, og ekki gengu skrifin betur.
Daginn byrjaði ég annars á því að sofa yfir mig, og mætti ósturtuð til vinnu, tíu mínútum of seint. Allan daginn lét ég mig dreyma um heitt bað og hárþvott, og eftir því sem löngun mín ágerðist óx hugmyndaflugið. Ég datt að lokum ofan á þá brjálæðislegu hugmynd að fara í sund.
Það er víst svo langt síðan ég fór í Lauga að nýir augnskannar eru komnir í stað þeirra gömlu, sem mér fannst nú samt ágætlega nýir. Eftir endurskönnun dreif ég mig í sundbolinn og arkaði út í laug. Nema hvað að þegar ég opnaði hurðina út tók á móti mér þessi líka snjóbylur (jú, víst var þetta snjóbylur) og ég lokaði því snarlega aftur. Ég fékk ekki einu sinni af mér að hlaupa út í heita pottinn í þessum kulda. Og því var aðeins eitt til ráða: Gufubað.
Eftir á var ég svo rauð í framan að ég hefði getað platað hvern sem er til að halda að ég hefði synt fimm kílómetra. Ef ekki sjö!
Taka tvö verður seinna í vikunni. Spurning hvort ég komist þá alla leið ofan í laug. |
posted by ErlaHlyns @ 22:12 |
|
3 Comments: |
-
þú hlýtur að vera frönsk prinsessa, alla vega ekki íslensk valkyrja.
-
Ef prinsessan á bauninni er frönsk ertu frönsk, annars sennilega dönsk ef marka má HC Andersen. Þá væntanlega í móðurættina því ég hefi það fyrir satt að í áatali langömmu þinnar séu bara kotbændur.
-
Kristín og Anna: Mér líst vel á þessar prinsessulíkingar. Nema hvað að ég er líka valkyrja ;)
|
|
<< Forsíða |
|
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|
þú hlýtur að vera frönsk prinsessa, alla vega ekki íslensk valkyrja.