29. feb. 2008 |
Engin drusla! |
Ég er ástfangin. Enda kominn tími til. Verst að það er ekki af manneskju heldur hlut, nánar tiltekið hvítri Toyota Corolla árgerð 2005. Verst að hún er ekki mín.
Ástkæra Opel Corsan mín bláa varð fyrir skakkaföllum nýlega. Mögulega hef ég ekið yfir einhverjar hindranir, eða það sem líklegra er, að einhver hafi skriðið undir bílinn og unnið skemmdir á vatnskassanum.
Kunningi minn bjargaði mér snaggaralega frá því að bíllinn bræddi úr sér, og í kjölfarið fékk hann fljótt tíma á verkstæði. Kunninginn lánaði mér Corolluna í dag á meðan Corsan væri í viðgerð.
Corollan er fimm árum yngri og mun liprari í akstri en Corsan. Þegar ég gat ekið upp Ártúnsbrekkuna í morgun fann ég að Corsan var úr sér gengin. Mér til mikillar gleði þarf hún að vera á verkstæðinu alla helgina og ég fæ að rúnta á Corollunni fram á mánudag. Ég sem er löngu hætt að fara í óþarfa bíltúra sé fyrir mér að keyra um allt höfuðborgarsvæðið á morgun og hinn. Bara því ég get það.
Corollan er hjákonan sem ég get aðeins verið með í takmarkaðan tíma og þarf að nýta hann til fulls. Á mánudag verð ég aftur á sömu druslunni og áður.
Til að fyllstu sanngirni sé gætt er rétt að taka fram að ég elska Corsuna mína meira en lífið. Við eigum sögu saman. Corollan er aðeins afþreying. |
posted by ErlaHlyns @ 21:40 |
|
3 Comments: |
-
Það er eins gott að þú farir ekki að óska eftir að fá lánaðan minn vinstrigræna eðalvagn. Þá myndir þú endanlega segja skilið við Corsuna. En ég lofa að þvo greyið í næstu þíðu :)
-
Helblá Corsa yrði sannarlega í hættu
-
ég er búin að þvo eðalvagninn minn og hann reyndist vera vinstrigrænn á litinn
|
|
<< Forsíða |
|
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|
Það er eins gott að þú farir ekki að óska eftir að fá lánaðan minn vinstrigræna eðalvagn. Þá myndir þú endanlega segja skilið við Corsuna.
En ég lofa að þvo greyið í næstu þíðu :)