Hugleiðingar konu v. 6.0
 
17. feb. 2008
Hægðaleikur
Í þættinum Braniac á Discovery Science eru gerðar tilraunir sem eiga að skera úr um hvort hinar ýmsu mýtur séu bara það, mýtur, eða hreinn og klár sannleikur.

Í kvöld (já, ég eyði laugardagskvöldum ein heima að horfa á Discovery) var tekið fyrir hið svokallaða brown noise, sem ég veit ekki hvað heitir á íslensku; hljóð með tíðni sem veldur því að fólk missir hægðir, bókstaflega.

Vísindamenn telja slíkt hljóð til en forsvarsmenn Braniac eru á öðru máli. Sá sem tók þátt í tilrauninni var ekki í mynd heldur innilokaður á kamri. Svindl.

En mýtan er lífsseig og margir sem hafa leikið sér með hana. Persóna í teiknimyndaseríunni Spider Jerusalem ber til að mynda vopnið Bowel Disruptor sem veldur því að óvinir og andstæðingar fá sársaukafullan niðurgang. Skemmtilegt.
posted by ErlaHlyns @ 00:37  
2 Comments:
  • At 18/2/08 18:38, Anonymous Nafnlaus said…

    hvernig fór tilraunin?? ég ætla ekkert að fara út í miklar útskýringar...en þetta er hægt:) en þetta er ekki "hljóð" í þeim skilningi.. mannseyrað heyrir þetta ekki. einnig myndi sá sem mundar vopnið líklega gera á sig í leiðinni.

     
  • At 18/2/08 21:56, Blogger ErlaHlyns said…

    hr2 sjálfur: Þeir hjá Braniac segja þetta hafa tekist. En geta ekki "sýnt" fram á það...

    Myndaseríugaurinn hlýtur að vera ónæmur fyrir hljóðinu, eða þessu interasoundi sem ég kunni ekki að setja yfir á íslensku.

     
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER