Hugleiðingar konu v. 6.0
 
14. feb. 2008
Undir fölsku flaggi?
Ég bíð spennt og mjög spennt eftir að einhver stígi fram og segi þetta eitt alsherjar grín. Mér þykir nefnilega heldur ólíklegt að listamaður sem fær slæma gagnrýni taki sig til og úthúði gagnrýnendunum persónulega í kjölfarið með einróma skítkasti, auk þess að gera sjálfan sig að athlægi í leiðinni.

Mér finnst hreint ótrúlegt að Bubbi sjálfur hafi ritað þetta á spjallborðið, og ekki aðeins af ofangreindri ástæðu heldur ekki síður tvennu öðru. Bubbi hlyti að geta fengið aðstoð við að koma texta frá sér á skikkanlegri máta en þetta hrafnaspark, allsendis óháð þekkingu á íslenskri tungu. Og varla færi Bubbi að skrifa um „Bubba Morthens“ nema hann sé vanur að tala um sig í þriðju persónu. Eða hvað? Hefði Bubbi ekki eytt þessum athugasemdum út af síðunni sinni einhvern tíman á þeirri viku sem þær hafa staðið þar?

Ég er ringluð.
posted by ErlaHlyns @ 22:47  
6 Comments:
  • At 15/2/08 01:26, Anonymous Nafnlaus said…

    Bubbi Morthens er skrifblindur.

    -þhs

     
  • At 15/2/08 01:26, Anonymous Nafnlaus said…

    Bubbi Morthens er skrifblindur.

    -þhs

     
  • At 15/2/08 15:20, Anonymous Nafnlaus said…

    Þess vegna skrifaði ég líka: Bubbi hlyti að geta fengið aðstoð við að koma texta frá sér á skikkanlegri máta“

    Og þhs er ekki nafn.

     
  • At 17/2/08 15:58, Blogger ErlaHlyns said…

    þhs: Mér þykir leitt að hafa svarað svona „hastarlega". Upphafsstafir er mun meira en margir hér skrifa.
    Ég er bara í einhverri fýlu :)

    En nú er „Ásbjörn" búinn að segja „sorrí“ vegna ummælanna um Dóra DNA. Að þessu sinni lét hann lesa yfir fyrir sig. Sjá spjallborð á bubbi.is

    En ég biðst einnig velvirðingar á öðru. Þetta var víst ekki Dr Gunni sem skrifað dóminn heldur Páll Baldvin.

    Nú höfum bæði ég og Bubbi sagt sorrí og horfum því fram á veginn.

     
  • At 17/2/08 16:26, Blogger ErlaHlyns said…

    Ég var ekki búin að lesa alla „afsökunarbeiðni" Bubba þegar ég skrifaði þetta hér að ofan. En hann segir þar m.a.:

    „Allavega er gott að sjá hvað Dóri á marga góða vini í blaðamannastéttinni. Greinilega komu orð mín sem föst vinstri stunga í smettið á honum. fannst þetta vera nokkuð svöl stunga á manninn með millinafnið DNA...“

     
  • At 19/2/08 23:58, Anonymous Nafnlaus said…

    Ég heiti Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir. Sorrí. Hélt að ég hefði oft skrifað hér athugasemdir undir skammstöfun og að þú vissir hver ég er. Mín mistök.

    Það sem ég vildi sagt hafa að mér finnst skrifblint fólk alveg mega skrifa á netið án þess að fá einhvern til þess að lesa yfir fyrir sig. Enda er texti Bubba ekki óskiljanlegur, heldur bara með nokkrum villum. Hér er ég kannski líka í hálfgerðri fýlu, eða réttara sagt; tek út á þér pirringinn sem hefur safnast upp síðustu daga, þegar ég hef séð að fólk er að gera grín að Bubba eða segja að hann sé ómarktækur vegna þess að stafsetning hans er ekki kórrétt.

    Love
    -þhs :-)

     
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER