24. feb. 2008 |
Klárustustu tíkurnar |
Helvítis prófarkalesarar. Eiginlega hef ég lítið annað að segja. Helvítis djöfulsins!
Skrif pressupistla er eitthvað það skemmtilegasta við vinnuna á DV. Þar fæst annars ófengið frelsi til að leika sér. Pressupistill helgarblaðsins bar frá mér yfirskriftina: Klárastasta fyrirsætan. Eftir prófarkalestur heitir hann Klárasta fyrirsætan.
Þarna var um að ræða þýðingu á America´s Most Smartest Model og brandarinn því farinn eftir að íslenskufræðingar komust í málið. Bölvað.
Mér var bent á að Guðbjörg Hildur Kolbeins hefði gagnrýnt notkun femínistans Erlu á orðinu tíkur í nýjasta pistlinum. Þeir sem lesa hann í heild sinni sjá þar setninguna: Enginn þarf að efast um að staðalímyndum er haldið á lofti í þáttunum. Og í framhaldinu: Þeir snúast um hávaxnar grannar tíkur. Tíkur, því oftar en ekki ákveða framleiðendur að leggja áherslu á mynbrot af stúlkunum baktala hver aðra og ráðgera hvernig þær geti best orðið kynsystrum sínum að falli.
Ef þetta er ekki skilgreining á stöðluðum tíkum þá veit ég ekki hvað. |
posted by ErlaHlyns @ 16:03 |
|
3 Comments: |
-
Eina rétta svarið við pistli Guðbjargar er klárlega "Ertu að segja að ég sé feit?!" Það andsvar hefur dugað mér ágætlega í flestum rökræðum hingað til og ætti sérdeilis vel við þarna ;)
Annars held ég að tíkur hafi almennt þessa merkingu núorðið. Ég veit svo sem ekki hvaða orð annað hefði náð þeirri merkingu sem þú vildir tjá.
-
Og svo ég tjái mig meira, sníkjublogga hægri vinstri í dag...
Auðvitað geta litlar breiðar konur verið tíkur en þessi þáttur bara er ekki um þá líkamsgerð. Sem Guðbjörg Hildur hefur mögulega ekki hugsað út í áður en hún greip tækifærið til að segja eitthvað sniðugt. (Hina kventíkurgerðina hef ég hinsvegar séð í þættinum þar sem heimili skipast á húsmóður)
-
Unnur: Mér datt svipað svar strax í hug og hefði gjarnan viljað skrifa það við færsluna, nema hvað Guðbjörg býður ekki upp á að fólk geri athugasemdir við færslurnar hennar og því heldur undarlegt að ég hrópi til hennar af minni eigin síðu: Ertu að segja að ég sé feit?
En já, kannski ég ætti að fara í meiðyrðamál þar sem fyrrverandi kennarinn minn gefur í skyn að ég sé tík ;)
|
|
<< Forsíða |
|
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|
Eina rétta svarið við pistli Guðbjargar er klárlega "Ertu að segja að ég sé feit?!" Það andsvar hefur dugað mér ágætlega í flestum rökræðum hingað til og ætti sérdeilis vel við þarna ;)
Annars held ég að tíkur hafi almennt þessa merkingu núorðið. Ég veit svo sem ekki hvaða orð annað hefði náð þeirri merkingu sem þú vildir tjá.