23. feb. 2008 |
Hænan Birgitta |
Af einhverjum ástæðum minnti Birgitta Haukdal mig helst á hænu í atrið kvöldsins í Laugardagslögunum.
Ekki meiri kátínu vakti atriði Davíðs Olgeirssonar sem söng þarna fyrstur lag sem ég man ekki hvað heitir.
Við Davið vorum saman í bekk í gaggó. Þar fengu nemendur það verkefni að gera skólablað. Ég og vinkonur mínar gerðum blað sem hét Loðnar lappir. Þar ítrekuðum við hrifningu okkar á eldri karlmönnum, sér í lagi þeim sem gengu í leðurjökkum og hermannastígvélum.
Í kjölfarið gáfu Davíð og félagar út skólablað þar sem kvenkostir voru ítrekaðir en að þeirra mati höfðu eiginkonur framtíðarinnar hvorki áhuga á þungarokki né leðurbuxum.
Við vinkonurnar sem gáfum út blað saman vorum þrjár, þar af tvær með brún augu. Í blaði Davíðs og vina var ítrekað að fallegar konur hefðu annan augnalit en brúnan.
En svona eru unglingsárin. |
posted by ErlaHlyns @ 21:14 |
|
2 Comments: |
-
Hæ Ég les ykkur báðar, þig og Guðbjörgu (fyrrum kennara okkar). Mátti til með að benda þér á þetta ef værir ekki búin að sjá þetta nú þegar: http://kolbeins.blog.is/blog/kolbeins/entry/453999/
-
Merci Esther. Nú þarf ég að skrifa bloggfærslu ;)
|
|
<< Forsíða |
|
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|
Hæ
Ég les ykkur báðar, þig og Guðbjörgu (fyrrum kennara okkar). Mátti til með að benda þér á þetta ef værir ekki búin að sjá þetta nú þegar: http://kolbeins.blog.is/blog/kolbeins/entry/453999/