Hugleiðingar konu v. 6.0
 
17. feb. 2008
Gothari á brúðkaupsmynd
Við í vinnunni hittumst á Ölstofunni á föstudag. Ég ákvað að vera eins klædd og eins máluð og ég var kvöldið áður á myndinni 27 dresses.

Annar ritstjórinn minn sagði að ég liti út eins og gothari.

Ég var auðvitað sármóðguð en sem betur fer tók samstarfsmaður minn upp hanskann fyrir mig.

Meint goth-lúkk mitt samanstóð af svörtum gamaldags kjól með pallíettum úr Rokki og rósum, óhóflegu magni af svörtum augnblýanti, dimmrauðu naglalakki og eldrauðum varalit.

Það var skylda að koma í kjól á kjólamyndina og fyrst ég átti engan gamlan brúðarkjól til að fara í, fannst mér viðeigandi að taka nokkur skref í andstæða átt.

Fordómar mínir í garð myndarinnar sem tjikk flikk voru allsendis út í loftið. Þetta var hin skemmtilegasta mynd og ég hló nokkrum sinnum upphátt. Hún þarna Grey´s Anatomy stelpan er ákaflega heillandi og alveg óhrædd við að vera „asnaleg“ til að vera fyndin, sem er kostur.
posted by ErlaHlyns @ 16:27  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER