Hugleiðingar konu v. 6.0
 
19. feb. 2008
Starfskröfur: Krabbameinslöngun
Nokkrir þingmenn hafa nú lagt fram frumvarp þess efnis að veitingastöðum verði heimilt að opna svokölluð reykrými sem starfsfólk þurfi ekki stíga fæti sínum inn í, nema þá eftir lokun til að fjarlægja sígarettustubbana. Nokkur atriði vefjast fyrir mér í þessu sambandi þar sem ég hef bæði unnið á skemmtistað og sótt þá þónokkra.

Fyrir reykingabannið sá starfsfólk um að tæma öskubakka og þrífa sígarettustubba sem fólk henti á gólf og drap í með því að stíga á þá, eða ekki. Ég get ekki séð að þessi reykrými verði mjög vistleg ef starfsfólk kemur þar hvergi nærri. Á stundum getur einnig skapast brunahætta.

Svokölluð glasabörn þjóna því hlutverki að sækja tóm glös sem gestir skilja eftir hist og her, og koma þeim í uppþvottavélina. Ef ekki má sækja glös á tiltekna staði sem heyra undir veitingastaðinn er hætt við að þau safnist fljótt upp.

Og segjum sem svo að einhver missi glasið sitt á gólfið þannig að það brotni, þá er engum starfsmanni skylt að þrífa glerbrotin eða þurrka upp bjórinn.

Og ef einhver reiðist svo hastarlega að hann ákveður að fá útrás fyrir tilfinningar sínar með hnefanum á nefi næsta manns er ekki hægt að krefjast þess að starfsfólk skerist í leikinn. Lögreglu er það þó væntanlega skylt og því gott að hafa hana á hraðvali.

Ef þessi reykrými verða að veruleika ímynda ég mér að starfsfólk sem bráðvantar tóm glös, óttast eldsvoða og getur illa horft uppá fólk beitt ofbeldi muni fyrr en síðar fara inn í reykrýmin. Og þar með er tilgangur upphaflegu laganna fallinn um sjálfan sig, að starfsfólk veitingahúsa geti starfað án þess að anda að sér tóbaksreyk.

Mér finnst það hreinlega bull að brotið sé á reykingamönnum með því að vísa þeim út að reykja. Ég reyki sjálf eftir tvo eða þrjá bjóra og fagnaði lagabreytingunum mikið enda reyki ég mun minna í kjölfarið.
posted by ErlaHlyns @ 22:37  
4 Comments:
  • At 20/2/08 15:06, Blogger Vestfirðingurinn said…

    Góðir punktar hjá þér! Gæti ekki verið meira sammála :)

     
  • At 20/2/08 22:55, Blogger ErlaHlyns said…

    Albertína: Trés bien!

    Einhvern veginn bjóst ég við að hér yrðu rökræður en svo virðist sem allir séu sammála mér ;) (yeah, right!)

     
  • At 20/2/08 23:23, Blogger Anna Kristjánsdóttir said…

    Kæra frænka. Það má vera að Albertína sé allir, en ég er ósammála því að reka alla út til að reykja þar á meðal þig og Albertínu. Við vitum það að tilgangur reykingabannsins er bara yfirvarp þeirra sem sem vilja ráða yfir fólki. Sjálf reyki ég ekki og hefi ekki gert í mörg ár.
    Reykherbergin ættu ekki að angra neinn ef horft er á hlutina frá skynsemi og góð loftræsting er þar inni. Það má að auki banna að glös séu tekin þangað inn í þeim tilfellum ef sá sem þarf að taka saman glösin reykir ekki.
    Sá sem þrífur reykherbergið eftir lokun þarf ekki að óttast reykinn heldur aðeins fnykinn sem er öllu verri en reykurinn.
    P.s. Þú mátt alveg reykja hér þegar þú kemur í heimsókn.

     
  • At 23/2/08 11:26, Anonymous Nafnlaus said…

    það má þá ráða reykingafólk sem glasabörn og stubbalinga. kannski fyrsta tilfellið þar sem jákvætt svar við spurningunni: reykir þú? gefur betri von um djobbið.

    reykingar eru viðbjóður.

     
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER