23. feb. 2008 |
Breiðavíkurmálið þaggað í hel |
Ég er auðvitað í skýjunum vegna frammistöðu míns fólks sem í dag fékk viðurkenningu fyrir bestu rannsóknarblaðamennsku ársins.
Blaðamannaverðlaunin voru veitt í dag og deildu ritstjórn DV og starfsmenn Kastljóss verðlaunum fyrir rannsóknarblaðamennsku liðins árs.
Hörmungarsagan um Breiðavík hefði aldrei komið fram ef ekki væri fyrir rannsóknablaðarmennsku og því ástæða til að fagna þessari viðurkenningu. Svört skýrsla um Breiðavíkurheimilið er auðvitað afar dapurleg en það er hlutverk fjölmiðla að koma á framfæri því sem stjórnvöld vilja þagga í hel.
Sigurjón M. Egilsson, fyrrverandi ritstjóri DV, og blaðamennirnir Valur Grettisson, Anna Kristine Magnúsdóttir, Sigtryggur Ari Jóhannsson, Hjördís Rut Sigurjónsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson, Jakobína Davíðsdóttir og Kristján Hrafn Guðmundsson deildu verðlaununum fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins 2007 með Þóru Tómasdóttur og Sigmari Guðmundssyni úr Kastljósi RÚV en báðir miðlar fjölluðu ítarlega um Breiðavíkurmálið sem DV opnaði í fyrra.
Það var 1. febrúar 2007 sem grein Vals Grettissonar um Breiðavíkurbörnin birtist í DV. Í kjölfarið fylgdu fleiri fréttir í DV, auk greinagóðrar umfjöllunar Kastljóss.
Þarna hafði hið svokallaða nýja DV rétt hafið störf og ég er óendanlega stolt af samstarfsfólki mínu. Sjálf kom ég ekki til liðs við blaðið fyrr en síðar, en fagna þó ákaflega. |
posted by ErlaHlyns @ 19:32 |
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|