6. mar. 2008 |
Bestastasti leynivinurinn |
Í vikunni hefur staðið yfir leynivinaleikur, svona til að hita upp fyrir árshátíðina í Malmö um helgina. Í morgun komst ég að því sem mig grunaði alltaf - minn leynivinur er bestur af öllum.
Þegar ég kom að skrifborðinu mínu var þar lítil karfa með fallegum borða og áletruninni: Malmö Survival Kit. Allir hlutirnir í körfunni voru síðan með álímdum litlum miðum með ábendingum.
Abba-geisladiskur: Handa íslenskri „dancing queen.“ Lítil Dooley´s flaska: Smá vodki (...bragðbættur) kemur sér alltaf vel. Smint: Ekkert Smint enginn koss. Bombu orkudrykkur: Orka, ef á þarf að halda. Lakerol: ...makes people talk! Brúnkuklútur: Quick-fix ef „ljótan“ bankar upp á. Útklippt og upprúlluð krossgáta: In case of boredom (...je ræt!) Plástrar: Dugar ekki á hjartasár. Smokkar: ...hér þarftu vonandi engar leiðbeiningar.
Ásamt Clear eyes og íbúfeni held ég að þetta sé fullkomnað. Það par reyndist mér allavega afar vel í síðustu utanlandsferð.
Leynivinur minn, eða vinkona reyndar, opinberaði sig síðan fyrir mér núna seinnipartinn. Í ljóst kom að þetta var sama stúlka og gerði dauðaleit að Erlu nokkurri sem var með miðapottinn til að draga um hvern ætti að gleðja í vikunni. Stúlkan hafði þegar dregið en útskýrði fyrir mér að hún væri með hugmynd í vinnslu. Viðkomandi yrði þó að vera að fara til Malmö og því miður hafði hún dregið einhvern leiðindapúkann sem ætlaði að dúsa heima. Ég gaf henni leyfi til að skipta og það kom á hana mikið fát þegar hún síðan dró ...mig. |
posted by ErlaHlyns @ 20:21 |
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|
Góða ferð til Malmö :)