3. apr. 2008 |
Þakkir dagsins |
Ég þakka fyrir að: - vera í fastri vinnu og öruggu húsnæði - þurfa ekki að glíma við krabbamein eða aðra lífshættulega sjúkdóma - vera ekki útskrifuð úr stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands, hafa skrifað lokaritgerð hjá Hannesi nokkrum Hólmsteini og nýverið sótt um framhaldsnám við erlendan háskóla, eða vinnu hjá virtu erlendu fyrirtæki.
Hins vegar lít ég á það sem staðreynd að Hannes stóð sig afar vel í Kastljóssþætti kvöldsins þar sem hann játaði brot sitt skýlaust. Íslenskur almenningur á ekki að venjast slíkri hegðun og mættu fleiri taka þessa hegðun sér til fyrirmyndar. |
posted by ErlaHlyns @ 23:14 |
|
4 Comments: |
-
Já, ég er mikið að spá í að styrkja aumingja HHG..
var ekki einhvers staðar gefinn upp söfnunarreikningur?
-
Harpa: Leggðu peninginn bara inn á minn reikning og ég kem honum til skila...
-
Ég get líka þegið peningana :)
-
Sérlega merkilegt er að hvergi fæst uppgefið hversu mikið hefur safnast. Hvers konar þjóðarsöfnun er það?
|
|
<< Forsíða |
|
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|
Já, ég er mikið að spá í að styrkja aumingja HHG..
var ekki einhvers staðar gefinn upp söfnunarreikningur?