14. apr. 2008 |
Ég er fræg! |
Loksins kom að því. Ég er í Stúdentablaðinu - einhverjum fimm árum eftir að ég sótti um að skrifa í það.
Reyndar er hvergi vitnað í mig í þessu nýjsta tölublaði en látum það liggja á milli hluta. Að vísu eru það ekki heldur orð mín sem vitnað er í, heldur orð sem ég hef eftir öðrum. Líklega veit heldur enginn að ég var skrifuð fyrir viðkomandi skrifum, nema ég sjálf, og nú þú. Sjálfsagt er það síðan skylda mín að taka fram að áðurnefnd orð eru þarna kölluð fréttaleysa úr DV. En hvað um það. Ég er í Stúdentablaðinu.
Til að svara forvitni forvitinna skal hér vitnað í téð blað:
„Íslenskur teiknari nýtur nafnleyndar: MÓTMÆLA ÍSLENSKRI MÚHAMEÐSTEIKNINGU“ (Forsíðufyrirsögn DV þann 18. mars, 2008)
Líklega hefur aldrei verið birt eins ofsafengin fyrirsögn fyrir aðra eins fréttaleysu. Fréttin gekk út á það að blaðið Sagan öll hefði fengið teiknara til að gera mynd af Múhameð til að hafa með sagnfræðilegri umfjöllun sinnar [sic] um hann. Aðspurður sagðist talsmaður múslima á Íslandi, Salmann Tamimi, vera andvígur myndbirtingunni og sagðist halda að múslimar myndu kannski mótmæla þessu í bréfaskriftum til blaðsins. Hvílík og önnur eins átök!
Við að pikka þetta rifjaðist upp fyrir mér að ég fæ víst ekki að skrifa forsíðutilvísanir blaðsins. En hugga mig við að þó hafi þó verið vitnað í tilvitnun í skrif mín þar sem ég vitna í aðra. |
posted by ErlaHlyns @ 23:17 |
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|