Hugleiðingar konu v. 6.0
 
17. apr. 2008
,,Af og til frá 1991"

- Daginn.
- Daginn. Skrifaðir þú þarna greinina um klámið í blaðinu í dag?
- Jaaá *héltímérandanumogbeiðeftirskömmum*
- Mig langaði bara að þakka ykkur fyrir þessi skrif. Skrifaðir þú líka greinarnar í gær og fyrradag?
- Já *öllukokhraustari*
- Ég hef sjálfur skoðað klám af og til frá nítjánhundruðníutíuogeitt. Manni skilst að þetta hafi mikið breyst með tilkomu Netsins. Ég er ekki með nettengingu þannig að ég þekki það ekki.


Síðan klykkti hann út með því að segjast vera 38 ára.
Djók eður ei. Hressandi símtal á annasömum degi.
posted by ErlaHlyns @ 22:36  
3 Comments:
  • At 17/4/08 22:57, Blogger Valur said…

    ja hérna. Annars er náttúrulega erfiðara að segjast vera á móti klámvæðingu ef maður neytir klámsins sjálfur. Kannski ekki ósvipað eins og reykingamaður sem hefur neikvætt viðhorf til tóbaks. Eða þó veit ég ekki. En hann duglegur 'essi...

     
  • At 19/4/08 17:12, Blogger ErlaHlyns said…

    Valur: Ég er reyndar ekkert svo viss um að viðkomandi maður hafi neitt á móti klámi.
    Í þessari grein sem um ræðir talaði ég við þrjá aðila. Sá fyrsti furðaði sig á þeim tvískinnungi að dreifing og sala kláms væri ólöglegt en vændi löglegt, svo lengi sem þriðji aðili hagnast ekki á þvi.
    Næsti viðmælandi vildi láta lögleiða klámið og fannst jafn eðlilegt að kaupa kynlíf og vínarbrauð.
    Þeim þriðja fannst klám vera ein birtingarmynd vændis og vill gera kaup á vændi refsiverð.

     
  • At 20/4/08 00:33, Blogger Valur said…

    Nei. Hugsanlega ekki. Hann skoðar það allavega af & til. Annars las ég að sjálfsögðu þessa grein þína um stúlkuna sem selur netsýningar. Þú ert að vísa í þá grein sé ég. Adam Smith-maðurinn lítur á þetta sem viðskipti sem allir ættu að hagnast á. Kolbrún Halldórsdóttir vill endurskilgreina klám sem anga vændis...

     
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER