Hugleiðingar konu v. 6.0
 
4. maí 2008
Kartöfludagurinn
Líkt og aðjúnktinn var ég ekki nokkru ástandi til að berjast fyrir verkalýðnum 1. maí, og meira að segja af sömu ástæðu.

Merkilegast þótti mér þó að ég uppgötvaði ekki fyrr en í gær að baráttudagurinn sameinaðist minningunni um hina meintu uppstigningu í ár. Ég læt þó liggja á milli hluta hvort það segir meira um samfélagið í heild sinni eða aðeins þá sem ég umgengst.

Þegar ég var lítil hélt ég þó alltaf að á uppstigningardag væri tími til kominn að stinga upp kartöflur.
posted by ErlaHlyns @ 17:39  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER