Hugleiðingar konu v. 6.0
 
16. maí 2008
Seldu vini þína
Á Facebook er fullt af sniðugum leikjum. Þannig getur fólk nú gefið mér blóm í garðinn minn, fóðrað kúna Hamlet sem ég tók í fóstur og tjáð sig nafnlaust um hvort mér sé treystandi.

Fyrir stuttu datt mér síðan í hug að bæta við leiknum Owned! þar sem allt snýst um að buy and sell your friends. Á fimm dögum hefur verðgildi mitt farið úr 666 netheimadollurum í 3757. En þeir sem hvað mest hafa boðið í mig eru hins vegar alls engir vinir mínir óg í raun bláókunnugt fólk. Þannig hafa þau Dani Foster og Knut Larsen skipst á að eiga mig að undanförnu og ég fæ reglulega skilaboðin: Dani Foster owns you!

Knut er 27 ára Norðmaður, heldur huggulegur. Dani er líka hugguleg. Á prófílmyndinni stendur hún fyrir framan veglegt mótorhjól á leðurnærfötunum sínum.

Ég held að þau þekkist ekki.
posted by ErlaHlyns @ 23:34  
2 Comments:
  • At 21/5/08 23:42, Blogger Unknown said…

    Tveir Bandaríkjamenn bitust um mig í byrjun í þessum leik. Ég varð eiginlega bara fegin þegar íslenskar kunningjakonur mínar fóru að "kaupa" mig í staðinn. :)

     
  • At 23/5/08 16:38, Anonymous Nafnlaus said…

    Ég átti þig á tímabili en svo varstu alltíeinu orðin svo dýr..

    Valtýr/Elvis2

     
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER