Hugleiðingar konu v. 6.0
 
8. sep. 2010
Rándýrt leyndarmál


Ég bara trúi því ekki að neinn kaupi þetta í alvöru. Ég trúi því ekki að nokkur maður borgi 2490 krónur fyrir 2 lítra af engiferseyði.

Þekkir þú einhvern sem kaupir þetta? Já, þú mátt meira að segja taka það fram ef þú hefur heyrt af einhverjum sem hefur keypt þetta. Líka ef það er frænka systur mágs þíns.

Ég leyfi mér að fullyrða að ég get búið til tvo lítra af engiferseyði með sítrónu fyrir tvö hundruð krónur enda sauð ég mér oft slíkt seyði síðasta vetur og geymdi í ísskápnum, einmitt í tveggja lítra flösku.

Í aada drykknum frá My Secret er reyndar lime, hrásykur, mynta og sítrónusýra. Ég fullyrði þó líka að þetta má allt missa sín, fullyrðingaglöð sem ég er. Engiferið er það sem máli skiptir og það litla engifer sem þarf kostar alveg ógurlega lítið. Hversu lítið ætla ég ekki að segja þér. Það er nefnilega leyndarmál.

posted by ErlaHlyns @ 22:01  
7 Comments:
  • At 8/9/10 23:20, Anonymous Nafnlaus said…

    Áts! Og jafnvel þótt við bættum við hinu sem í þessu er færi flaskan tæpast upp fyrir 500 kallinn. Ef þá svo hátt.

     
  • At 8/9/10 23:23, Anonymous Valtýr Björn Thors said…

    Umreiknað í Íslenskar krónur þá borgaði ég tæpar 800 krónur fyrir 33cl dós af Canada Dry engiferöli í Noregi og það var hverrar krónu virði.

    En ég myndi ekki kaupa þetta My secret stöff, það er mynd af virkilega krípí gaur á flöskunni og einhvernveginn er engiferdrykkur þannig á litinn að mér finnst að hann eigi að vera í ógegnsæum umbúðum, það kæmi mér alls ekkert á óvart ef verðmyndunin á þessum drykk réðist af því að hann sé búinn að fara í gegnum gaurinn á miðanum áður en honum var tappað á flöskur.

    Valtýr / Elvis2

     
  • At 8/9/10 23:41, Blogger ErlaHlyns said…

    Ég styð íslenskt hugvit og íslenska framleiðslu en þetta er bara R-Á-N.
    Meira að segja er mjög óhagsýnt af mér sem húsmóður að reikna með tvöhundruð kalli í þetta. Raunupphæð er líklega nær sjötíu krónum en ég vildi frekar nefna of háa tölu en of lága. Ég man bara ekki hvað engifer og sítróna kosta í grömmum talið.

    Ég get samt alveg vottað að engiferdrykkur með sítrónu gerir kraftaverk. Best er bara að búa hann til sjálfur.

     
  • At 9/9/10 00:18, Anonymous Nafnlaus said…

    Svo hef ég smakkað þennan drykk og það er mjög erfitt að koma honum niður. Ólíkt því sem maður býr til heima.
    Það hefði örugglega gefið meira í aðra hönd að láta hann kosta rúmlega helmingi minna svo fólk myndi láta sér detta í hug að kaupa hann!
    Lilja G.

     
  • At 10/9/10 10:23, Anonymous Sólrún said…

    Ég get svo svarið að ég veit um tvo sem hafa keypt þetta! Reyndar í minni skömmtum.

    Hef sjálf ekki smakkað og finnst þetta fáránlega dýrt - en það kemur fljótlega í ljós hvort þetta selst eða ekki. Það eru svosem alltaf einhverjir tilbúnir að greiða meintar töfralausnir og allrameinabót dýru verði...

     
  • At 12/9/10 10:51, Anonymous Helga Kristjánsdóttir said…

    Ég vinn í búð og get sagt að það er þvílík eftirspurn eftir þessu! Fólk sem almennt er sparsamt og hagsýnt spyr um þennan drykk og setur verðið ekki fyrir sig. Við erum að selja alveg helling af þessu drasli og eldri borgarar eru í miklum meirihluta kaupenda.

     
  • At 12/9/10 18:21, Blogger ErlaHlyns said…

    Ja hérna, Helga. Það hlýtur þá dágóður hluti af ellilífeyrinum að fara í þetta. En ég efast ekkert um að þessi drykkur geri fólki gott því engifer er ákaflega heilnæm rót.

    Jæja, nú langar mig barasta í engiferseyði en á ekkert engifer. Þarf sannarlega að kaupa það næst þegar ég fer út í búð.

     
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER