Hugleiðingar konu v. 6.0
 
19. des. 2008
Ljótupeysudagur


Á morgun er ljótupeysudagur í vinnunni. Ég stóðst því ekki freistinguna í dag og hvíslaði að nokkrum: „Þetta er ekki fyrr en á morgun!“
posted by ErlaHlyns @ 00:15  
3 Comments:
  • At 21/12/08 16:38, Blogger Valur said…

    Kæra Erla
    Ég var á flugvelli stuttu fyrir efnahagshrunið og sá þar í verslun til sölu bleika angórupeysu. Mér var hugsað til klæðskiptingsins Ed Wood en hann var svo mjög veikur fyrir bleiku angórunni. Ég hugsaði hvernig það hefði verið fyrir hann að vera uppi nú á dögum. Því þetta var í herrafatabúð. Eflaust hefði einhvejum þótt þessi peysa ljót. Hún var dálítið bold. En ég keypti hana ekki. Hún var á yfir 20.000 kall. Og það á útsölu. Og n.b. rétt fyrir hrunið... Til þess að vera ekki of mikill furðufugl hefði ég líklega aldrei gengið í henni nema á hinum alþjóðlega ljótapeysudegi sem er aðfangadagur. (Peysan var náttúrulega mjög hlý og fáranlega þægileg viðkomu.)

     
  • At 23/12/08 02:35, Blogger ErlaHlyns said…

    Valur: Fyrsta regla alheimsins. Fólk kaupir ekki peysur sem kosta yfir tvo tugi þúsunda.

    Þess utan hefði ég nú bara splæst í eina bleika og mjúka. Mér finnst hún hið minnsta hljóma kósý.

     
  • At 29/12/08 15:27, Blogger Valur said…

    Kaupir maður ekki peysu á 20.000 kall? Hérna er ein hugguleg á $800. Peysan kostaði kanínurnar eitthvað en þaðan kemur efnið.

    http://www.angoraknit.com/servlet/-strse-115/Larger-Men%27s-angora-sweater/Detail

    og ein önnur:

    http://www.angoraknit.com/servlet/-strse-46/Men%27s-angora-sweater/Detail

     
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER