4. des. 2008 |
Glæpakvendi skrifar |
Dómur er fallinn. Ég var fundin sek.
Ég hef því verið dæmd til að greiða Helgu Haraldsdóttur, eiginkonu Guðmundar Jónssonar, fyrrverandi forstöðumanns Byrgisins, 100 þúsund krónur í miskabætur. Viðmælendur mínir í grein DV voru báðir sýknaðir, þau Ólöf Ósk Erlendsdóttir, betur þekkt sem Byrgisstúlkan, og Magnús Einarsson, fyrrverandi starfsmaður Byrgisins.
Helga fór alls fram á þrjár milljónir í miskabætur. Þar sem þau Ólöf Ósk og Magnús voru sýknuð þarf hún að greiða þeim hvoru um sig 300 þúsund krónur vegna málskostnaðar. Eins og kemur fram á Visir.is tapar Helga því hálfri milljón á málssókninni. Auk þessa þarf hún að greiða eigin lögmanni.
Ég vek athygli á eftirfarandi hluta málsatvika og lagaraka:
Stefnda Erla mótmælir því sérstaklega að með því að hafa ummælin eftir stefndu Ólöfu Ósk hafi þær báðar haft uppi ásakanir á hendur stefnanda, með vísan til þess að ummælin séu höfð eftir stefndu Ólöfu Ósk og engu af því sem felst í ummælunum sem stefnt sé út af, sé haldið fram af stefndu Erlu. Ákvæði prentlaga geti með engu móti breytt því hver teljist höfundur ummæla ef fyrir liggi hver hafi látið hin umstefndu ummæli falla. Í málinu sé viðurkennt af hálfu stefnanda að hin umstefndu ummæli séu frá stefndu Ólöfu Ósk og eigi hún því að bera ábyrgð á þeim.
Í dómsorði segir hins vegar:
Líta verður svo á að stefnda Erla beri sem blaðamaður og nafngreindur höfundur greinar þeirrar, sem hin umstefndu ummæli birtust í, ábyrgð á ummælunum. Þau ummæli sem birtust í staflið i, birtust innan gæsalappa í greininni og eru þar sögð höfð eftir stefndu Ólöfu Ósk. Við skýrslutöku af stefndu Erlu við aðalmeðferð málsins kom fram að hún hefði hljóðritað samtal sitt við stefndu Ólöfu Ósk og haft beint eftir henni, en hins vegar hefði hún ekki geymt hljóðritaða samtalið. Stefnda Ólöf Ósk kannaðist aðspurð í aðalmeðferð við að hafa átt samtal við stefndu Erlu og vitað að hún væri blaðamaður og væri að undirbúa grein um Byrgismálið, en hún neitaði því hins vegar fyrir dómi að hafa sagt orðrétt það sem eftir henni var haft, þar á meðal þau ummæli sem rakin eru í staflið i. Ekki verður talið nægilega sannað, gegn neitun stefndu Ólafar Óskar, að hún hafi viðhaft ummælin orðrétt, þannig að dæma megi hana til greiðslu miskabóta vegna þeirra. Er það því niðurstaða málsins varðandi miskabótakröfu stefnanda, að stefnda Erla verður ein dæmd til að greiða stefnanda miskabætur.
Viðbót: Vegna fjölda fyrirspurna er rétt að geta þess að þegar greinin var skrifuð starfaði Helga sem stuðningsfulltrúi við grunnskóla. |
posted by ErlaHlyns @ 20:32 |
|
7 Comments: |
-
Djöfulsins helvítis rugl. Þarftu að greiða þetta úr eigin vasa?
-
HVAÐA STEYPA???? Hún getur sagst ekki hafa sagt þetta og verið sýknuð... og þú átt að borga??? KLIKKAÐ!
Viltu senda mér reikningsnúmer og kennitölu, ég skal stofna hóp á Facebook til að safna í þetta fyrir þig!
-
Ég er til í að borga inn á stuðningsreikning og auglýsa hann! Ekki spurning. Sem betur fer er þetta ekki há upphæð.
-
Mér líst vel á söfnun, skal leggja henni lið og þigg boð á facebook í hóp.
Kv. Árný Leifsdóttir
-
Ég þakka hlýjan hug en Helga hefur ákveðið að áfrýja til Hæstaréttar. Því verður ekkert greitt, að sinni hið minnsta.
Erla
-
Æ, ég varð eiginlega að skrifa hér aftur þakkir. Mér finnst þetta svo fallegt hjá ykkur ;) En ég þarf sem betur fer ekki að þiggja boðið. Að sinni, hið minnsta.
-
Ég er ekki mjög vanur að tjá mig um dóma til eða frá, enda þótt ég telji mig lítillega dómbæran á slíkt. Hins vegar sýnist mér þessi niðurstaða gersamlega fráleit.
|
|
<< Forsíða |
|
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|
Djöfulsins helvítis rugl. Þarftu að greiða þetta úr eigin vasa?