Hugleiðingar konu v. 6.0
 
28. nóv. 2008
Hneyksli dagsins...
... eru orð Andrésar Magnússonar, framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu, í fréttum hins síminnkandi RÚV í kvöld.

Fréttin hófst á þeim orðum að „hætt er við því að fátæklegt úrval verði af sparifötum fyrir jólin því fyrirtæki í fatainnflutningi komu að lokuðum dyrum í dag þegar leitað var eftir bankaábyrgð.“

Andrési skilst að „bankar neiti að gefa út greiðsluábyrgð, bankaábyrgð á öðru en matvöru, jafnvel núna akkúrat þessa dagana, sem er stóralvarlegur hlutur“

Áherslan virðist því á að nýta gjaldeyrinn til kaupa á mat, lyfjum og eldsneyti. Sparifatnaðurnn fyrir jólin mætir afgangi. Hneyksli.
posted by ErlaHlyns @ 23:05  
3 Comments:
  • At 29/11/08 09:45, Anonymous Nafnlaus said…

    Ég var einmitt að hugsa um að nota þetta í ræðuna á mánudag í upptalningu á ógnvekjandi fyrirsögnum á fjölmiðlavefum. Því öfugt við þig sé ég hræðilegu hliðina. Það er nefninlega ansi margt fólk á Íslandi sem á lífsafkomu sína undir sölu á fatnaði. Því miður kannski, en það er samt staðreynd.
    Ég tek það fram að ég held ekki að ég þekki nokkurn mann í þeirri stöðu en ég hugsa samt fallega til þeirra sem reka fataverslanir, mig grunar að það séu oftar en ekki konur, og sjá nú alla sína uppbyggingu og áhættu falla um sjálfa sig og geta ekkert gert því til bjargar.

     
  • At 29/11/08 18:41, Blogger ErlaHlyns said…

    parísardama: Í fréttinni var einnig fjallað um að margir ættu afkomu sína undir sölu fatnaðar. Mér fannst hins vegar skemmtilegra að setja þetta svona fram.

    Gangi ykkur vel við sendiráðið á mánudaginn!

     
  • At 1/12/08 08:41, Blogger Kristín said…

    Merci Madame!
    En ég mótmæli því samt harðlega að gert sé grín að því að lítil fyrirtæki fái nú bara að renna á hausinn hvert á fætur öðru. Lifi lítil og blómleg fyrirtæki. Burt með helvítis risana sem éta allt sem á vegi þeirra verður!

     
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER