Hugleiðingar konu v. 6.0
 
14. nóv. 2008
Netfréttaflýtir
„Vá, munur að lesa netfrétt sem er skrifuð á íslensku,“ sagði vinkona mín og íslenskukona mikil þegar ég benti henni á frétt sem ég skrifaði á dv.is.

Ég viðurkenndi þá fyrir henni að ég skildi núna ástæðurnar fyrir mörgum af þeim villum sem gerðar eru í netfréttum vegna tímapressu enda skiptir oft máli á hvaða mínútu fréttin birtist. Ég geri fjöldann allan af villum þar þó ég sé ágætlega að mér í íslensku.

Ekki er langt síðan við fengum póst um netfrétt sem ég skrifaði: „Ég held að sá sem heldur að fundur fallbeygist eins og hundur ætti að snúa sér að öðru en fréttaskrifum.“

Auðvitað veit ég alveg hvernig fundur fallbeygist en þegar hraðinn skiptir mestu vilja mistök verða.

Ég varð vitanlega hundfúl við að fá þessa athugasemd; langaði helst að svara manninum og skora á hann í einvígi í fréttaskrifum. En róaði mig, breytti fréttinni og hugsaði full samúðar til allra þeirra netfréttamanna sem ég hef gert gys að.

En hraðinn er engin afsökun, hvorki fyrir mig né aðra. Þetta á allt að vera kórrétt.
posted by ErlaHlyns @ 20:02  
3 Comments:
  • At 14/11/08 22:23, Anonymous Nafnlaus said…

    Nú bara alveg ágætis frammistaða á fundinum seinni partinn. Myndi ekkert vera að íhuga breytingar á starfsvettvangi ... a.m.k. ekki strax ;)

     
  • At 17/11/08 22:52, Blogger ErlaHlyns said…

    Tryggvi: Ég hef ákveðið að taka miklu meira mark á þér en bréfritara ;)

     
  • At 21/11/08 22:09, Blogger harpa said…

    Já en það hlýtur að vera hægt að prófarkarlesa hjá hvor öðrum -er það ekki? Maður er alltaf að lenda í því að hreinlega komast ekki í gegnum frétt af því hún er svo illa skrifuð.

     
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER