20. okt. 2008 |
Kaldhæðni bankaörlaganna |
Ég fékk þær fregnir í dag frá færeyska blaðinu Dimmalætting að þeir hefðu ekki getað millifært til mín greiðslu fyrir greinina sem ég skrifaði. Ástæðan: Færeysku bankarnir neita að flytja peninga til Íslands.
Greinin var um ástand efnahagsmála á Íslandi í kjölfar bankahrunsins. |
posted by ErlaHlyns @ 21:22 |
|
3 Comments: |
-
Færeysku bankarnir eru í sama kerfi og Danir. Það er trúlega þeir sem lokuðu á okkur. Danir hafa ekki beint haft traust á bönkunum okkar og á heimasíðu Danske bank er tilkynning um að þeir treystu aldrei á okkar bankakerfi og okkar hrun núna myndi ekki hafa áhrif á þá vegna þeirra takmörkuðu viðskipta sem þeir eiga við okkur með gengi og hlutabréf. http://www.danskebank.com/da-dk/Presse/nyheder/Pages/sm06102008a.aspx
-
Þú getur kannski gert eins og framtakssöm kona sem ég kannast við. Hún átti að fá greitt fyrir viðvik frá Danmörku, en þar sem það var ekki hægt bað hún um að fá prjónagarn í staðinn og fékk það. Vantar þig ekki eitthvað frá Færeyjum sem þeir geta sent þér í staðinn fyrir peninga? Skerpikjöt kannski? Færeyskar peysur eru flottar, þar er fullt af flottum hönnuðum, möguleikarnir eru margir...
-
Nafnlaus: Samkvæmt mínum nýjustu heimildum get ég fengið peningana ef ég stofna sparisjóðsreikning. Sel það ekki dýrara en ég keypti það. (Fjórar evrur, og verðið fer hækkandi).
Harpa J: Sérlega góð hugmynd. Verst að ég veit ekki um neitt færeyskt sem ég elska nema Eivöru. Ætli ég getið fengið hana?
|
|
<< Forsíða |
|
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|
Færeysku bankarnir eru í sama kerfi og Danir. Það er trúlega þeir sem lokuðu á okkur. Danir hafa ekki beint haft traust á bönkunum okkar og á heimasíðu Danske bank er tilkynning um að þeir treystu aldrei á okkar bankakerfi og okkar hrun núna myndi ekki hafa áhrif á þá vegna þeirra takmörkuðu viðskipta sem þeir eiga við okkur með gengi og hlutabréf.
http://www.danskebank.com/da-dk/Presse/nyheder/Pages/sm06102008a.aspx