9. okt. 2008 |
Kisuhundur í umferðinni |
Við ökum Miklubrautina við Miklatúnið á eðlilegum hraða þegar ljósbröndóttur kisi birtist skyndilega á götunni. Útikisur eru nú ýmsu vanar og hlaupa yfirleitt í burtu þegar bílar nálgast. En ekki þessi. Frænka mín snarhemlar því til að keyra ekki yfir kisuna. Þegar við stoppum sjáum við að þetta er engin kisa heldur chihuahua-hundur.
Bílarnir fyrir aftan okkur byrja að flauta og einn jeppinn er kominn upp á grasið, væntanlega til að forðast árekstur. Ég hleyp út úr bílnum og nálgast rennblautan hundinn sem vildi ekkert með mig hafa heldur stóð sem frosinn og gelti látlaust. Flautin í bílunum skelkuðu mig og ég sá ekkert annað fært en að grípa í blautan tauminn sem lá á götunni og kippa hundinum inn í bíl. Hann hlyti að vera með merkta hálsól og ég gæti hringt í eigandann. Ekki gat ég skilið hann eftir til þess eins að hann færi aftur út í umferðina.
Við vorum varla sest þegar frænkan brunar af stað. Og um leið sé ég mann með annan smáhund í bandi koma hlaupandi út úr limgerðinu hrópandi: Þetta er hundurinn minn!
Í flýtinum vegna bílflautanna fórum við strax á fulla ferð en frænkan gaf stefnuljós og við ókum upp á grasið. Hundeigandinn náði okkur á hlaupum, ég opnaði bílhurðina og rétti hundinn út. Flauturnar voru enn yfirgnæfandi og við ókum strax aftur af stað.
Sekúntum síðar var ekkert sem gerði þessa súrrealísku reynslu raunverulega nema blaut fótspor hundsins á gallabuxunum mínum. |
posted by ErlaHlyns @ 23:05 |
|
3 Comments: |
-
Þetta er bara eins og spennandi kvikmyndasena.
-
Já - tilvandi upphafssena á spennumynd til dæmis.
-
Parísardama og Harpa J: Þetta var líka æsispennandi. Mögulega æsilegustu mínútur lífs míns :)
|
|
<< Forsíða |
|
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|
Þetta er bara eins og spennandi kvikmyndasena.