Hugleiðingar konu v. 6.0
 
22. sep. 2008
Hundaskítur að ofan
Yfirleitt er ég sannfærð um að tilviljanir eru einmitt það, tilviljanir. En stundum efast ég.

Í einum af fyrstu bekkjum menntaskóla máttum við velja hvaða bók sem var, í öllum heiminum, til að lesa fyrir enskutíma og skrifa um ritgerð. Á bókasafninu valdi ég bók sem ég hafði aldrei áður séð eða heyrt um: A wizard of Earthsea eftir Ursulu Le Guin.

Bókardómurinn var miður fallegur og ég man að orðabókar var þörf til að fletta upp „longwinded.“ Kennarinn minn, Terry Gunnell, var ekki hrifinn og sagði bókina meistaraverk. Undrun mín var þvílík yfir því að hann hefði lesið einmitt þessa bók, af öllum þeim bókum sem til væru. Einkunnin mín fyrir enskukunnáttu var þó ágæt.
Nokkrum árum síðar bauð Terry nemendum upp á valkúrs í ensku þar sem þríleikur Ursulu Le Guin um Earthsea var lesinn.

Tilviljum?

Í næsta enskukúrsi var samskonar val, og mitt var ævisaga Mozarts. Ég lagði engin smáatriði á minnið og varð furðu lostin þegar kennarinn, Jón, kunni hana gjörsamlega utanbókar.

Nokkrum mánuðum síðar var hann hrókur alls fagnaðar á skólatónleikum Synfóníuhljómsveitar Íslands þar sem klassísk tónverk voru leikin. Þá var þetta víst hans uppáhalds.

Tilviljun?

Fyrr í kvöld fór ég út að ganga með hundinn, að venju. Óvenju sætti þó nýji jakkinn minn og hans undarlegu vasar. Þegar hundurinn loks gerði þarfir sínar þreifaði ég í örvæntingu minni eftir pokum en fann að þeir voru horfnir.

Því horfði ég í kring um mig og valdi bæði hús og dyrabjöllu vandlega. Maðurinn sem kom til dyra tók vel í erindið og sagðist eiga úti í bíl sérstaka poka fyrir hunda.
Ég sagði honum að það væri óþarfa ómak, en velti því jafnframt fyrir mér hvort hann væri hundaeigandi.
„Ég er hundaeftirlitsmaður hér á Seltjarnarnesinu,“ var svarið.

Tilviljun?
posted by ErlaHlyns @ 21:35  
2 Comments:
  • At 23/9/08 00:32, Anonymous Nafnlaus said…

    Terry er nottla bara gamall hippi, Ursula Le Guin semur science fiction fyrir nýaldarhippa, alveg hundleiðinlegt stöff.

    Valtýr/Elvis2

     
  • At 26/9/08 00:04, Blogger ErlaHlyns said…

    Valtýr: Mér finnst hún allavega longwinded...

     
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER