Hugleiðingar konu v. 6.0
 
17. sep. 2008
Einkalíf með takmörkunum
Rannsóknir geta verið til margra hluta nytsamlegar. En að öllu jöfnu skiptir máli hver það er sem rannsóknina gerir. Er það þrýstihópur sem býr til leiðandi spurningalista þar sem allir neyðast til að svara á ákveðinn hátt, eða eru rannsóknaraðilar óháðir fræðimenn við tiltekinn háskóla?

Þessi grundvallaratriði þurfa að liggja fyrir þegar niðurstöður eru skoðaðar. Aðeins þannig er ljóst hvort nokkuð mark er á þeim takandi. Því myndi skegg mitt vera rifið, ef ég hefði nokkuð, eftir að lesa allar þær fréttir sem reglulega birtast þar sem aðeins er sagt: „Rannsókn var gerð...“.

Jafnvægi mitt fór því nokkuð úr skorðum þegar ég las nýlega frétt þar sem sagði að „samkvæmt könnun sem gerð var höfnuðu þrjátíu og fjögur prósent atvinnuveitenda umsækjanda um vinnu á grundvelli upplýsinga af Facebook- eða MySpace-síðu viðkomandi.“

Þessi „frétt“ segir mér nákvæmlega ekki neitt því ég veit ekki hverjir standa á bak við könnunina. Voru það samkeppnisaðilar þessara vefsíðna sem reyna að komast inn á markaðinn með því að skemma orðspor forveranna? Tölfræðingar á tiltekinni ráðningastofu? Eða jafnvel fasísk stjórnvöld sem vilja minnka áhuga almennra borgara á þessum tímaeyðslusíðum?

Ég er reyndar löngu búin að læsa minni Facebook-síðu fyrir öðrum en „vinum“ mínum. Þó vill svo óheppilega til að ófáir samstarfsmenn mínir og jafnvel yfirboðarar teljast þarna sem „vinir.“

Kannski þyrfti að vera hægt að flokka „vinina“ þannig að hægt sé að aðskilja starfsframa og einkalíf. Ef framinn verður þá einhver.

Birt á bloggi dv.is 15. september
posted by ErlaHlyns @ 21:39  
3 Comments:
  • At 18/9/08 09:30, Blogger Auður said…

    Þú getur stillt þetta í privacy stillingunum hjá þér... þannig að þó svo að fólk séu vinir þínir á Facebook þá þurfa þeir ekki endilega að sjá allt sem er á prófílnum.

    Hvort að allar upplýsingar eigi heima á netinu er svo allt annað mál, þeir sem koma sér í þá aðstöðu að þeir fái ekki vinnu vegna þess sem stendur á Facebook kölluðu það kannski yfir sig sjálfir!

     
  • At 20/9/08 11:01, Anonymous Nafnlaus said…

    Ertu flutt aftur frá DV? Þarf að breyta tenglinum á þig eða er villan hjá DV bara tímabundin? Reyndar kunni ég ekkert sérlega vel við það umhverfi.

     
  • At 22/9/08 01:14, Blogger ErlaHlyns said…

    Auður: Takk fyrir þetta.

    Parísardama: Ég er enn að íhuga þetta ;) Hér er nú mun hlýlegra.

     
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER