Hugleiðingar konu v. 6.0
 
24. júl. 2008
Spurning dagsins
Afgreiðslufólk gleður mig oft alveg óskaplega og ég reyni að gleðja það á móti.

Þegar fullorðið fólk skammast í barnungu og blásaklausu starfsfólki á kössum matvöruverslana á ég til að grípa inn í og segja: Heyrðu! Það er ekki eins og hann beri ábyrgð á hækkandi heimsmarkaðsverði á matvælum.

Ég gleymdi því nefnilega aldrei þegar ég var nítján ára og vann við símsvörun hjá Flugmálastjórn.
Mér fannst alltaf voðalega leiðinlegt þegar fólk hellti sér yfir mig og skammaði út af lágflugi við íbúabyggð.
Ég sagði þeim sem var að mér þætti þetta auðvitað mjög miður en þar sem ég hefði ekki umsjón með lofthelgi Íslands gæti ég ekkert gert í málinu.

Ég var líklega ekki sú glaðværasta þegar ég lét vörurnar mínar á borðið og rétti afgreiðslumanninum debetkortið.
Viltu poka? spurði hann.
Nei, takk! svaraði ég ákveðið.
Ertu aaaalveg viss?
Mér brá við spurninguna enda horfði hann á mig eins og hún væri sú eðlilegasta í heimi. Ég hleypti brúnum og fór að efast um þá ákvörðun mína að kaupa ekki poka. Var hún nægilega vel ígrunduð?
Ég leit yfir vörurnar, sem voru sárafáar, brosti breitt og sagði við afgreiðslumanninn: Já, ég er alveg viss.

Ég var enn brosandi þegar ég var komin út í bíl.
posted by ErlaHlyns @ 17:48  
4 Comments:
  • At 25/7/08 10:49, Blogger Hanna said…

    Ég hef reynt að afþakka poka í matvöruverslun á Íslandi, án árangurs. Ég var reyndar ekkert spurð hvort ég vildi poka, heldur hve marga poka ég vildi.
    Ég vil engan poka, sagði ég en fyrir daufum eyrum, svo ég keypti einn handa næsta manni.

     
  • At 25/7/08 17:51, Blogger ErlaHlyns said…

    Hanna: Já, oft er hreinlega gert ráð fyrir að maður vilji poka og hann réttur fram án þess að maður hafi gefið í skyn að poka sé þörf. En ég kaupi ekki poka nema "í neyð" og er eiginlega komin í æfingu í að afþakka þá. Afgreiðslumaðurinn í gær spurði mig hins vegar svo fallega að ég efaðist stórlega um pokaþörf mína.

     
  • At 25/7/08 19:52, Blogger Hlynur Þór Magnússon said…

    Alltaf tek ég poka. Stundum marga og svo einn í viðbót undir hina pokana. Ég veit nefnilega að með þessu styrki ég Pokasjóð, sem úthlutar peningum til góðgerðamála. Þannig fékk Sálin hans Jóns míns milljón krónur núna í vor úr Pokasjóði svo að hún gæti gefið út nótnabók með vinsælustu lögum sínum. Ég, sjálfur minnipokamaðurinn, er stoltur yfir stuðningi mínum.

     
  • At 26/7/08 18:33, Blogger ErlaHlyns said…

    Hlynur: Já, gott ef það var ekki einhver stórkostlegur blaðamaður sem skrifaði enn stórkostlegri frétt um þetta á sínum tíma :)

     
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER