11. júl. 2008 |
Fúlsaði við fóstrinu |
Dexter rétt læddist að selsfóstrinu og þefaði af því. Honum leist greinilega ekkert á blikuna og tók uppfrá því stóran sveig framhjá fóstrinu eins og það væri sjálfur dauðinn, sem það líklega er.

Fóstrið er til sýnis á Hlunnindasýningunni á Reykhólum undir yfirskriftinni Útselskópur - fóstur.
Þar stendur einnig:
Þessi litli kópur fannst í kviði útsels sem veiddur var djúpt út af Horni árið 1981. Sagan á bak við það er að þá um haustið fóru þeir Guðjón Arnar Kristjánsson (síðar alþingismaður), og Guðmundur H. Ingólfsson (síðar sveitarstjóri Reykhólahrepps) á sjó frá Ísafirði, á hraðbátnum Ingólfi sem var í eigu Guðmundar. Ætluðu þeir norður fyrir strandir að skjóta svartfugl og sel og veiða fisk til matar. Þeim tókst m.a. að fanga einn útsel og við fláningu kom í ljós að þetta var urta sem var að því komin að kæpa. Kópurinn var fullskapaður og því tóku þeir hann með í land. Seinna lét Guðjón Arnar stoppa kópinn upp og gaf mági sínum Guðmundi í afmælisgjöf. Kópurinn hefur oft verið handfjatlaður af börnum sem skoðað hafa selinn í krók og kring, og hefur hann því nokkuð látið á sjá í tímans rás. |
posted by ErlaHlyns @ 01:48 |
|
2 Comments: |
-
-
Já, ég sumsé eyddi auglýsingu um apótek frá einhvurjum útlendingnum. Annars ríkir hér auðvitað ritfrelsi sem endranær.
|
|
<< Forsíða |
|
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.