6. júl. 2008 |
Margnota Morgunblað |
Draumurinn að geta verið með opið út á sólpall breytist í martröð þegar eldhúsið fyllist af flugum. Pabba finnst ekki taka því að drepa þær: Það koma bara nýjar flugur í staðinn.
Hann er mikill kisukall en ég held að hann verði sífellt hrifnari af hundum. Allavega finnst honum mikið til líkamstjáningar Dexters míns koma. Sérstaklega er það skottið sem tryggir að allir vita hvernig hundum líður þá og þá stundina.
- Hver hefur til dæmis séð belju dilla skottinu af gleði þegar maður kemur labbandi? - Já, og ekki dilla hestarnir sínu skotti!
Háfleygar samræður eru okkar uppáhald.
Hann bætti við: Kýrnar nota halann bara eins og þú notar Morgunblaðið. Til að drepa flugur! |
posted by ErlaHlyns @ 23:00 |
|
2 Comments: |
-
Ertu enn fyrir westan? Ég var nefnilega að velta því fyrir mér að elta þig og gott betur, þ.e. labba Látrabjargið. Kemurðu með ef ég kem framhjá á þriðjudag eða miðvikudag?
-
Anna: Ég hefði verið meira en til í almennilega göngu. Meira að segja vígði ég nýju gönguskóna mína í ferðinni nú. En ég er víst að leggja íann aftur suður seinna í dag. Ég þakka því boðið og segi: GANGI þér vel.
Þú gætir hins vegar kíkt á pabba ef þú hefur tíma og áhuga fyrir smá krók. Hann er á upplýsingamiðstöðinni hér og sér um Hlunnindasýninguna dag hvern frá kl 11 til 18. Þið gætuð eflaust spjallað mikið um ættfræði.
Hann fékk einmitt óvænta heimsókn í gær frá Eyjubloggara sem hann hefur aldrei átt samskipti við nema blogglegs eðlis :)
|
|
<< Forsíða |
|
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|
Ertu enn fyrir westan? Ég var nefnilega að velta því fyrir mér að elta þig og gott betur, þ.e. labba Látrabjargið. Kemurðu með ef ég kem framhjá á þriðjudag eða miðvikudag?