Hugleiðingar konu v. 6.0
 
5. júl. 2008
Börnin koma á þriðjudaginn
Átt þú þessa sólarvörn?, spurði þriggja ára strákurinn sem mætti mér þegar ég kom úr sturtuklefanum í sundi.

Ég játti því staðfastlega að eiga brúsann sem ég hafði vart lagt frá mér þegar drengurinn tók hann upp.

Þetta var búinn að vera fínasti dagur. Ég hafði legið í tvo klukkutíma í sólbaði við Grettislaug á Reykhólum.

Átt þú börn?, spurði strákurinn í röklegu framhaldi af fyrri samskiptum okkar.

Nei, engin börn. Bara sólarvörn, svaraði ég glaðlega. Að ég taldi.

Eru börnin þín dáin?

Ég hætti að þurrka mér og brosti fallega til mömmu drengsins. Það hefði auðvitað verið eilítið vandræðalegt ef börnin mín væru í raun dáin og ég þyrfti að svara fyrir það allsnakin, umkringd ókunnugu fólki.

Ég brosti líka til stráksins. Nei, nei.

Hvort sem mamman var að tala við mig eða son sinn sagði hún hughreystandi: Þau koma bara seinna.

Koma þau á morgun?, spurði sá stutti áhugasamur.

Neei. Kannski koma þau á næsta ári. Ég var líka hughreystandi.

Koma þau á þriðjudaginn?

Kannski. Já, kannski koma þau bara á þriðjudaginn.
posted by ErlaHlyns @ 15:16  
4 Comments:
  • At 5/7/08 17:15, Blogger Kristín said…

    Auðvitað koma þau bara seinna, allir vita að allir eignast börn einhvern daginn, þetta er auðvitað bara spurning um tíma.

     
  • At 6/7/08 22:39, Anonymous Nafnlaus said…

    "allir vita að allir eignast börn einhvern daginn" ég á ekki orð yfir þessari fjarstæðukenndu fullyrðingu!!

     
  • At 6/7/08 22:56, Anonymous Nafnlaus said…

    Kristín og Björg: Bara svo þið vitið það þá eruð þið sammála ;)

    Það er bara þessi bölvaði ókostur við netskrif, tölvupósta og sms að „tónninn“ kemst ekki með.

     
  • At 7/7/08 13:04, Blogger Kristín said…

    He he, ná sem sagt ekki allir hæðnistóni í skrifum mínum? Ekki í fyrsta sinn sem ég lendi í þessu svo sem.

     
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER