3. júl. 2008 |
Kaffisopi í sundi |
Sundlaugin á Seltjarnarnesi er í mestu uppáhaldi hjá mér.
„Það er hægt að fá kaffi þar og allt,“ segi ég iðulega þegar ég reyni að telja fólk á að koma með mér í sund á Nesinu.
Af einhverjum ástæðum finnst sumum þetta ekkert merkileg staðreynd og segir jafnvel að það hafi engan áhuga á að drekka kaffi í sundi. Ég get hins vegar varla ímyndað mér neitt dásamlegra en að stíga upp úr lauginni, setjast á sólbekk og sötra kaffi.
Af öðrum kostum sundlaugarinnar á Seltjarnarnesi má nefna að í henni er saltvatn og hún er skammt frá heimilinu mínu (kostur sem sumir vanmeta). |
posted by ErlaHlyns @ 00:08 |
|
8 Comments: |
-
Mér finnst líka fínt að það sé hægt að fá kaffi í sundi. Það er boðið upp á heitt og gott kaffi í sundauginni á Flateyri. Í Vík er ískalt vatn í brúsa á bakkanum við heita pottinn. Það er líka ágætt.
-
En hvernig borgi þið kaffið þegar þið eruð í sund? Hvar á maður að geyma peningana?
-
Harpa J: Það er LÍKA ískalt vatn í lauginni á Seltjarnarnesi ;)
Valur: Það er the beauty of it all - kaffið er frítt.
-
Ég vil helst fá kampavín eftir sundsprettinn ;)
-
Loksins einhver með viti hérna. Styð Önnu.
-
mmm.. og jarðaber með því! þá skal ég koma með í sund. kannski.
-
Anna: Kampavín er líka ágætt.
Kristín: Ok, kampavín er meira en ágætt.
Harpa: Já, kampavín og jarðaber. Þá væri þetta fullkomnað. Og kaffi með.
-
Líka í sundlauginni á Suðureyri! :)
Ég væri samt mest til í mímósu eftir sundsprettinn. Held það væri notalega hressandi! :)
|
|
<< Forsíða |
|
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|
Mér finnst líka fínt að það sé hægt að fá kaffi í sundi. Það er boðið upp á heitt og gott kaffi í sundauginni á Flateyri. Í Vík er ískalt vatn í brúsa á bakkanum við heita pottinn. Það er líka ágætt.