Hugleiðingar konu v. 6.0
 
17. jún. 2008
Söfnum fyrir Sálina
Pokasjóður hefur nú úthlutað styrkjum fyrir árið sem er að líða. Samtals var yfir áttatíu milljónum úthlutað til 87 aðila.

Í samþykkt Pokasjóðs segir:
Einasta markmið sjóðsins er að veita styrki til verkefna, sem horfa til almannaheilla svo sem umhverfismála, menningar-, íþrótta- og heilbrigðismála

Þessi verkefni sem varða almannaheill eru meðal annarra forvarnarverkefni gegn kynferðislegu ofbeldi sem Þroskahjálp fékk styrk til, fræðsla og áróður gegn akstri utan vega sem Landvernd sinnir og sögusýning um Tyrkjaránið á vegum Söguseturs.

Tuttuguogþrír fengu styrki að milljón eða meira. Sumir styrkjanna voru þó mun lægri og til að mynda voru veittar 70 þúsund krónur til þýðingar á bók um átröskun.

Sálin hans Jóns míns er þó betur metin en svo enda fékk hljómsveitin einnar milljón króna styrk úr Pokasjóði til að gefa út nótnabók með vinsælustu lögum sveitarinnar.
posted by ErlaHlyns @ 19:07  
7 Comments:
  • At 17/6/08 19:33, Blogger Þórdís Gísladóttir said…

    Sálin hans Jóns míns almannaheill? Ég veit það ekki.

     
  • At 17/6/08 22:18, Blogger Sóley said…

    hvaða andskotans rugl er þetta??? (ég biðst afsökunar á orðalaginu en ég get engan veginn hamið mig)

     
  • At 17/6/08 22:31, Blogger Sóley said…

    ég get ekki betur séð en Sálin hafi fengið 1.5 milljón http://www.mbl.is/media/43/943.pdf

    úff ég er alveg hryllilega hneyksluð

     
  • At 17/6/08 23:21, Blogger Harpa Jónsdóttir said…

    Verulega spes.

     
  • At 18/6/08 01:37, Blogger ErlaHlyns said…

    Sóley (og fleiri): Á mbl.is eru aðrar tölur en birtar voru í opnuauglýsingu frá Pokasjóði í öllum helstu dagblöðum á þjóðhátíðardaginn. Þar stendur skýrt og greinilega: 1.000.000
    Spurning hvort er rétt.

     
  • At 18/6/08 05:53, Blogger Kristín said…

    mbl.is er alltaf með réttar upplýsingar og aldrei neinar villur hjá þeim.

     
  • At 18/6/08 17:40, Anonymous Nafnlaus said…

    ekki sé ég neitt ad tví ad teir styrki útgáfu á nótnabók med bestu løgum sálarinnar (tó ég sé enginn addáandi). Skil ekki alveg

    enda flokkast tad undir menningarmál.

    Tetta mun líklegast hneyksla ykkur meir. Styrkir pokasjóds 2007

    Haukur Guðlaugsson 500.000 Söfnun og útgáfa á orgelverkum fyrir verðandi organista
    Helena M Eyjólfsdóttir 400.000 Tónleikar vegna 50 ára söngafmælis

    Meina ad styrkja afmæli einhverrar konu...

    Líklegast mikid stud ad glamra á gítar gamla slagara med sálinni eins og "krókurinn" eda "hei kanína" ... ;)

     
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER