Hugleiðingar konu v. 6.0
 
7. jún. 2008
Anima Sana
Þar sem ég hef nú skokkað reglulega í rúman mánuð ákvað ég að festa kaup á almennilegum skóm. Ég vildi ekki eyða peningum í það fyrr en ég væri viss um að ég myndi nota skóna. Eftir að ég dreif mig út að skokka skömmu fyrir miðnætti í gær því mér fannst dagurinn annars ómögulegur, komst ég að þeirri niðurstöðu að það væri rétt að kaupa skó.

Asics hlaupaskór urðu fyrir valinu. Nafnið er skammstöfun á latneska máltækinu Anima Sana In Corpore Sano; heilbrigð sál í hraustum líkama.

Anima er einmitt heiti á nemendafélagi sálfræðinema við Háskóla Íslands þar sem ég sat eitt ár sem meðstjórnandi. Þetta er því gamalt household name á þessu heimili.
posted by ErlaHlyns @ 19:16  
1 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER