20. maí 2008 |
Af ljósabekkjum og hommum |
Það er ekki líklegt að hún fái mörg stig frá femínistum en kannski örlítið fleiri frá vanþroska karlmönnum sem hlutgera konur, og það er ekki lítill markhópur í Evrópu
Sigmar Guðmundsson kynnti flytjendur í Júróvisíon til leiks með stæl. Þessi orð lét hann falla um hina Slóvensku Rebekku. Hann vandaði heldur ekki pólsku söngkonunni kveðjuna:
Hún er eini flytjandinn sem semur bæði lag og texta. Hún er líka eini flytjandinn sem á lögheimili í ljósabekk, eins og sést von bráðar.
Og að lagi loknu: Þeir fagna hérna fjölmargir aðdáendur brúnkuspreys í salnum.
Dima Bilan hinn rússneski er einn fárra flytjenda í keppninni sem ekki hefur unnið, utan Íslendinga, sem ég þó þekki nafnið á. Vinur minn var svo óendanlega skotinn í Dima þegar hann tók síðast þátt og gat ekki hætt að tönglast á nafni hans. Lagið var líka sérdeilis fínt. Atriðið hans í ár var það líka. Mér fannst agalega flott að hafa skautadansara dans í kring um Dima. Síðan hef ég alltaf verið veik fyrir fiðlum. En Dima skaut aðeins fyrir ofan markið að mínu mati þegar hann hneppti alveg frá skyrtunni sinni í lokin. En hann hefur fengið einhver gay-stig. Ég vona bara hans vegna að hann sé hommi.
Í lokin er rétt að taka fram að tenglar í færslunni leiða aðeins til eldri upptaka af lögunum, en ekki flutningi kvöldsins. |
posted by ErlaHlyns @ 19:37 |
|
4 Comments: |
-
Fráhneppingin er staðalútbúnaður á Dima. Síðast þegar hann tók þátt hoppaði hann upp á flygilinn á sviðinu og svifti skyrtunni frá bringunni.
Annars fannst mér Sigmar ekkert fyndinn. Útlitskommentin um sólbrúnku, plastlíkamshluta og klæðaskort beindust öll að konum á meðan að karlmennirnir voru ekkert minna brúnkaðir, vaxaðir, gelaðir og án efa einhverjir búnir að láta laga nef, augnpoka etc. Í stað þess að virka sem brandari um heimsku karlmenninga sem falla fyrir bimbólúkki (sem mér finnst líka leim alhæfing um smekk karlmanna) þá upplifði ég kommentin bara sem aðra útgáfu á ,oj hvað hún er feit/gömul/etc'
Ég var sko pc fýlupúki dauðans í gær! :) Nema þegar Adjerbædjan spilaði, þá skellti ég mér á lær og gapti af undrun! :)
-
Unnur María: Mér fannst Sigmar einmitt frábær og ég var álíka spennt, ef ekki spenntari, að heyra hvað hann segði á milli laga eins og að heyra lögin sjálf.
-
Ég horfði ekki á sjálfa keppnina en fylgdist með Sigmari þegar sigurvegarar kvöldsins voru kynntir. Mér fannst hann bara nokkuð góður.
-
Mér fannst Sigmar fyndinn, sérstaklega þetta komment um vanþroska karlmenn sem átti að sjálfsögðu ekki við um ALLA karlmenn. :)
|
|
<< Forsíða |
|
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is