Hugleiðingar konu v. 6.0
 
2. jún. 2008
Náði henni á endasprettinum
Stúlkan sem hlaut titilinn Ungfrú Ísland var í öðru sæti í keppninni Ungfrú Reykjavík.

Hvernig fór hún að því á aðeins nokkrum vikum að verða sætari en sigurvegarinn í Reykjavík? Og af hverju þarf yfirleitt að senda í lokakeppnina stúlkur sem lenda undir fyrsta sætinu í forkeppnunum?
posted by ErlaHlyns @ 23:19  
3 Comments:
  • At 3/6/08 23:18, Blogger Björg said…

    Góð pæling Erla. Mér dettur helst í hug að stíf brosþjálfun og gönguæfingar geti gert gæfumuninn á svona Íslandsmótum. Þetta getur verið æsispennandi á lokasprettinum skal ég segja þér...

     
  • At 6/6/08 19:04, Blogger Unknown said…

    Er þetta ekki bara eins og í öðrum keppnisíþróttum, stundum breytist röðunin þegar í úrslitin er komið? Það hlýtur að vera hægt að bæta sig í fegurð eins og öðru. Kannski lét hún klippa sig eða réði sér nýja förðunardömu.

     
  • At 7/6/08 21:49, Blogger Unknown said…

    Hún hefur greinilega brokkað betur á sviðinu þetta kvöldið.

    Annars fannst mér þessi sem var í öðru sæti mun glæsilegri, enda landsbyggðartútta eins og ég.

     
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER