21. maí 2008 |
Sumarsaga |
Þetta var dagur niðulægingar í vinnunni. Samstarfsmaður minn fann hvert gullkornið á fætur öðru eftir mig í Barna-DV.
Þessi saga birtist þar 24. september 1987, daginn fyrir níu ára afmæmlið mitt.

Við rákumst líka á auglýsingu eftir pennavini sem ég er skrifuð fyrir en vil ekki kannast við:
Mig langar að eignast 8-10 ára pennavini úti á landi, t.d. á Húsavík. Áhugamál: Dýr, fimleikar, safna frímerkjum og fleira.
Ekki það að ég hafi nokkuð á móti Húsvíkingum. Hins vegar hef ég aldrei haft minnsta áhuga á fimleikum.
Þessi sem við fundum hljómar heldur sennilegri:
Erla er 10 ára og vill skrifast á við stelpur á aldrinum 10-13 ára. Áhugamál: Blak, Michael Jackson, frímerki, fótbolti og ferðalög. |
posted by ErlaHlyns @ 21:29 |
|
2 Comments: |
-
Þú sást ekki frímerkjasafnið mitt þegar þú komst í heimsókn. Þú verður greinilega að mæta í heimsókn hið bráðasta og áður en kaffið kólnar í könnunni.
-
Þú ert greinilega mikið skáld, kona. Snemma beygist krókurinn og allt það.
Einhvern tímann skrifaði ég stórkostlega sögu um kettling í barnablað Tímans. Ég orti líka ljóð sem voru m.a. lesin upp í einhverjum unglingaþætti í útvarpinu. Enn hef ég ekki sent frá mér fleiri meistaraverk.
Spurning hvort að við verðum með í næsta jólabókarflóði? ;)
|
|
<< Forsíða |
|
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|
Þú sást ekki frímerkjasafnið mitt þegar þú komst í heimsókn. Þú verður greinilega að mæta í heimsókn hið bráðasta og áður en kaffið kólnar í könnunni.