Samstarfsmenn mínir hringdu um allan bæ til að fá spár um úrslit Júróvisjon. Greiningadeild Kaupþíngs treysti sér ekki til að vera memm.
Mitt uppáhald á seinna undanúrslitakvöldinu komst ekki áfram. Textagerðin þar var reyndar ekki upp á marga fiska og hefði því eflaust farið betur að syngja á búlgörsku. En þér til yndisauka er lagið hér:
Annars spái ég Dima Bilan fyrsta sætinu. Vona bara að hann haldist nú í fötunum.
Ég hefi ekki enn heyrt portúgalska lagið. Heyrði rússneska lagið í fyrsta sinn í heild sinni eftir að þeir unnu og þá fannst mér lagið rammfalskt og verra en þær slitrur sem ég hafði heyrt úr því áður. Ég vil taka fram að ég var að vinna á Júróvisjónkvöldi og varð því að fagna fyrirfram gefnum sigri í einrúmi :)
Alveg sammála þér með Búlgarska lagið. töff lag. Ég man ekki alveg hvernig rússneska lagið var, en gosh! hvað ég var fegin að það fékk fleiri stig en Grikkland =:-O
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
Sko þig. Þú vannst :)