2. jún. 2008 |
Tímabundið sambandsleysi |
Nettengin mín virtist alfarin í gær. Ég mundi eftir ógreiddum reikningi frá Vodafone og taldi víst að hreinlega hefði verið lokað á mig. Þegar ég komst í vinnutölvuna í dag greiddi ég reikningana.
Á heimleiðinni velti ég fyrir mér hvort þeir opnuðu nokkuð fyrir netið samdægurs á sunnudegi. Síðan mundi ég að nettengin mín er ekki hjá Vodafone heldur Hive, og það er ekki ég sem borga reikningana heldur vinnan.
Þetta var víst bara tímabundið sambandsleysi þarna í gær. En ég er allavega búin að borga símareikninginn. |
posted by ErlaHlyns @ 01:15 |
|
2 Comments: |
-
Ég kannast við svona alzheimer einkenni. Þess vegna er ég ekkert að skipta um netfang og held áfram að versla við símnet eins og ég hefi gert síðustu tíu árin :)
-
Anna: Ég fór einmitt yfir til Tals þegar það var og hét. Síðan varð Tal OgVodafone sem síðan varð Vodafone. Og nú hafa Hive og Sko sameinast í Tal. En ég er ekki þar. Þetta fer að verða flókið.
|
|
<< Forsíða |
|
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|
Ég kannast við svona alzheimer einkenni. Þess vegna er ég ekkert að skipta um netfang og held áfram að versla við símnet eins og ég hefi gert síðustu tíu árin :)