Hugleiðingar konu v. 6.0
 
5. jún. 2008
Fágætur lúxus
Ég kíkti áðan á HFH, nýja tímaritið hans Hans Fróða Hansen og Ragnheiðar Guðfinnu Guðnadóttir. Blaðið er ókeypis en þó ekki fyrir hvern sem er. Eftir því sem sagan segir er aðeins hægt að nálgast það á einhverjum posh stöðum, eins og í spa eða á Saga Class. Ég var því bara heppin að bera það augum áðan.

Sérstaka athygli mína vakti grein um andremmu. Réttara sagt voru þetta tíu ráð gegn andremmu sem sett voru fram á þremur blaðsíðum.

Annars staðar í blaðinu var síðan tveimur blaðsíðum eytt í sögu brjóstahaldarans, allt frá örófi alda (eða svona næstum því).

Aðrar tvær blaðsíður fara í auglýsingu á snyrtivörulínu hans Hans fyrir karlmenn.
posted by ErlaHlyns @ 16:36  
7 Comments:
  • At 5/6/08 16:56, Blogger Kristín said…

    Og verður þér úthýst af posh-staðnum sem þú fannst blaðið á ef þú gefur okkur andfúlum lesöndum þínum ráðin?

     
  • At 5/6/08 18:46, Blogger Þórdís Gísladóttir said…

    Ég las um daginn í dönsku vikublaði að andremma væri óhjákvæmilegur fylgifiskur anorexíu. Þessu nýja tímariti er möguelga ætlað að höfða sérstaklega til fólks með svoleiðis átröskunarkvilla.

     
  • At 5/6/08 21:54, Blogger ErlaHlyns said…

    Kristín: Mér verður væntanlega ekki úthýst úr vinnunni en það var einmitt þar sem ég sá blaðið.

    Ragnheiður Guðfinna kom í eigin persónu með eitt blað handa okkur. Einn pilturinn sagðist hafa tekið andköf þegar hún nálgaðist.

    ÞG: Ætli hún hafi verið svona andfúl?

     
  • At 5/6/08 22:34, Anonymous Nafnlaus said…

    Er ekki venjan að efni og dreifing taki mið af markhópum? Samkvæmt því ætti fólkið á þeim stöðum sem þú nefnir að vera andfúlla en almennt gerist.

    H.Þ.Magnússon

     
  • At 7/6/08 21:43, Blogger ErlaHlyns said…

    H.Þ.M: Nú get ég ekki svarað. Ég er aldrei á þessum stöðum...

     
  • At 7/6/08 21:47, Blogger Unknown said…

    Andremma og saga brjóstahaldarans á fimm síður. Hljómar rosalega spennandi. Eða ekki.

    Hvað ætli það líði svo langur tími þar til þetta fer á hausinn? Vill einhver veðja? ;)

     
  • At 9/6/08 12:09, Blogger ErlaHlyns said…

    Farfuglinn: Tvö blöð, hámark?

     
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER