Hugleiðingar konu v. 6.0
 
8. jún. 2008
Sápubornir karlmenn
Þeir sem eiga kort í Laugum geta farið úr búningsklefunum sínum og beint út í Laugardalslaug. Úr sturtunni þarf aðeins að fara fram á gang og velja þar einn af nokkrum stigum upp á yfirborð jarðar þar sem sundlaugin blasir við.

Ég man auðvitað aldrei hvaða stiga ég fer upp enda ekki fastagestur, og er yfirleitt í mestu vandræðum með að velja tröppur til að fara aftur niður.

Eftir sundferðina í dag endaði ég því á óvæntum stað - í karlaklefanum. Þar blöstu auðvitað við mér naktir menn, tveir talsins, að strjúka sig alla með sápu. Ég held að þeir hafi ekki tekið eftir mér. Ég vona allavega ekki.

Vitanlega laumaðist ég hljóðlega aftur út, þar sem ég greip fyrir munninn á mér og hélt fyrir hann alla leiðina í kvennasturtuna.

Þar langaði mig mest að kalla til ókunnugra sturtufélaga minna: Pæliði íðí, stelpur! Ég fór óvart í vitlausan sturtuklefa og sá bara alsbera kalla.
En ég ákvað að halda því fyrir mig. Þar til nú.
posted by ErlaHlyns @ 17:42  
3 Comments:
  • At 8/6/08 18:42, Blogger Valur said…

    Ussss... Þetta er alveg agalegt hjá þeim þarna í Laugardalslauginni. Þangað til við erum orðin nógu siðmenntuð til að hafa uni-sex-sturtuklefa þá verða að vera almennilega leiðbeiningar til staðar.

     
  • At 8/6/08 21:55, Anonymous Nafnlaus said…

    Það gæti hæglega komið fyrir mig að labba "óvart" inn í kelligaklefann semsagt, ég er nottla með alveg handónýta sjón og fer aldrei út í laug með gleraugun á mér, hmm..

    Valtýr/Elvis2

     
  • At 10/6/08 22:40, Blogger Hrönn Sigurðardóttir said…

    Ég sé þig alveg fyrir mér roðna, blána og skjálfa eins og lítil táningsstelpa, hefði viljað vera fluga á vegg þarna.....
    En annars ákvað ég að kvitta nú einu sinni fyrir mig, kvitt kvitt kvitt...
    Hrönn:)

     
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER