Hugleiðingar konu v. 6.0
 
21. jún. 2008
Bleikjan og Túttan
Nýtt tæki til að greina brjóstakrabbamein hefur fengið heitið Björg.
Þetta er snjallt nafn og gott. En mín hugmynd var þó frumlegri: Bleikjan.

Í rökstuðningi með tillögunni benti ég auðvitað á að bleikur væri táknlitur baráttu gegn brjóstakrabbameini, og að fiskur ríkur af ómega-fitusýrum væri heilnæm fæða. Sér í lagi hefur verið bent á að neysla á ómega3 geti virkað sem forvörn gegn krabbameini. Síðan er alltaf gaman þegar orð fá nýja merkingu í málinu.

Mér datt líka í hug að kalla tækið bara Túttuna. Ég hef enn ekki farið í svona brjóstaskoðun og gæti kannski hlakkað ponsu til ef það væri Túttan sem kremdi brjóstin mín.
posted by ErlaHlyns @ 21:35  
2 Comments:
  • At 22/6/08 13:50, Anonymous Nafnlaus said…

    Bleikjan er dásamlegt nafn :]

     
  • At 26/6/08 18:16, Blogger ErlaHlyns said…

    frú birna: Ef þú sást styrktarþáttinn þá var lesið upp ansi skemmtileg aðsend vísa sem rímaði og þar var stungið upp á nafninu: Ýsa.
    Fiskur hefur því verið í hugum margra.

     
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER