Hugleiðingar konu v. 6.0
 
21. júl. 2008
Má? Nei!
Máney er eitt nýjasta tískunafnið.
Ein stúlka var nefnd Máney árið 1961. Síðan liðu tveir tíðindalausir áratugir.
Frá 1980 til 1985 fengu þrjár nafnið, þar af ein að fornafni.
Það var loks árið 1992 þegar fimmta stúlkan var nefnd Máney, að seinna nafni.
Frá 1995 hefur hins vegar minnst ein stúlka fengið nafnið á ári hverju.

Nú er svo komið að 22 stúlkur bera nafnið Máney sem fyrsta nafn og átján sem annað nafn.

Mér finnst nafnið voðalega krúttilegt og allt það, en einhvern veginn ekki hljóma rétt þegar það er sagt upphátt.
posted by ErlaHlyns @ 22:43  
7 Comments:
  • At 21/7/08 23:32, Blogger Þórdís Gísladóttir said…

    Þetta nafn minnir mig bara á kvæðið eftir Jónas; Ég uni mér ekki út í Máney og er hún þó skemmtileg o.s.frv.

     
  • At 22/7/08 22:34, Blogger ErlaHlyns said…

    ÞG: Ég virðist sammála félaga Jónasi, finnst Máney krútt en ekki hljóma nógu vel.

     
  • At 22/7/08 23:48, Blogger Anna Kristjánsdóttir said…

    Nafnið Máney minnir mig á ungan pilt sem átti sér þann draum að verða kona. Hann er löngu hættur við þessa fyrirætlun sína en draumanafnið hans var Máney.

    Þetta var á árunum eftir 1980

     
  • At 24/7/08 18:05, Blogger ErlaHlyns said…

    Anna: Hann hefur líklega hugsað með sér> Ég MÁ verða kona. En á ég? NEI!

     
  • At 25/7/08 03:14, Blogger Anna Kristjánsdóttir said…

    Ekki alveg.

    Hann vildi verða kona og fór til læknis. Læknirinn sagði við piltinn: Nei, ég skal hjálpa þér til alls nema að verða kona. Því varpð pilturinn aldrei kona og ég held að hann sé bærilega sáttur við hlutskipti sitt í dag

     
  • At 25/7/08 20:18, Blogger Erna Erlingsdóttir said…

    Aðalpersónan í Dægurlagasöngkonan dregur sig í hlé e. Snjólaugu Bragadóttur heitir Máney. Bókin kom út 1980 - ætli hún hafi haft áhrif á nafngiftirnar 1980-1985?

     
  • At 26/7/08 19:14, Blogger ErlaHlyns said…

    Anna: Þannig að það var læknirnn sem sagði NEY en ekki pilturinn.

    Erna: Mér þykir það bara afar líklegt. Ég hafði einmitt heyrt af þessari bók og nafngift persónunnar.

     
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER