19. júl. 2008 |
Mismunandi áherslur |
Bubbi Morthens gefur lítið fyrir baráttu Bjarkar og Sigurrósar fyrir umhverfismálum og stingur upp á að þau einbeiti sér frekar að fátækt. Fyrirsögn á baksíðu Morgunblaðsins í dag er því: Björk ætti frekar að syngja gegn fátækt.
Í því sambandi er áhugavert að í sama viðtali ræðir Bubbi um þá staðreynd að hann hefur tapað gríðarmiklum peningum á hlutabréfaviðskiptum
En ekki er langt síðan Bubbi sjálfur söng gegn kynþáttafordómum. Hefði hann ekki frekar átt að syngja gegn einelti í grunnskólum?
Í baráttu fyrir jafnrétti kynjanna hef ég ósjaldan fengið að heyra „mótrök“ sem þessi. „En hvað með hungruðu börnin í Afríku? Er þér alveg sama um þau?“ Yfirleitt kemur þetta frá fólki sem situr heima og gerir aldrei neitt.
Upplýst og yfirvegað svar mitt er því vitanlega: „Redda þú börnunum í Afríku. Ég er að gera annað.“ |
posted by ErlaHlyns @ 19:38 |
|
2 Comments: |
-
Er nokkuð svo mikið kynjamisrétti í gangi. Eitthvað sjálfsagt jú. Kannski spurning um að koma sjálfum sér betur á framfæri. Ég hef sjálfur verið á vinnustað þar sem stelpa var með meira kaup en ég. Skipti mig engu. Stelpan er alger skörungur og ég þarf ekkert að skammast mín enda ekkert að skammast sín fyrir :)
-
Spritti: Fékk hún sumsé hærri laun en þú fyrir að sinna sama starfi og þú?
Annars var ég sjálf í grunnskóla í tíu ár. Samt man ég bara eftir einum strák sem var laminn reglulega í frímínútum. Ætli einelti sé nokkuð svo mikið vandamál?
|
|
<< Forsíða |
|
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|
Er nokkuð svo mikið kynjamisrétti í gangi. Eitthvað sjálfsagt jú. Kannski spurning um að koma sjálfum sér betur á framfæri. Ég hef sjálfur verið á vinnustað þar sem stelpa var með meira kaup en ég. Skipti mig engu. Stelpan er alger skörungur og ég þarf ekkert að skammast mín enda ekkert að skammast sín fyrir :)