Hugleiðingar konu v. 6.0
 
12. júl. 2008
Firring
Þið eruð öruggari hér en í rútunni á leiðinni hingað, sagði starfsmaður Adrenalíngarðsins þegar hann kynnti starfsemina fyrir okkur í gær.

Ég fór ekki í fleiri tæki eftir að ég mætti samstarfsmanni mínum alblóðugum í framan eftir sex metra fall í þessum örugga garði.

Þegar ég fór í rafting niður Hvítá fyrir nokkrum árum var okkur gerð grein fyrir því að þetta væri ekki algjörlega öruggt sport. Auðvitað vissum við það en ábyrgt af starfsfólki að reyna ekki að halda öðru fram.

Í Adrenalíngarðinum var hins vegar ítrekað að þarna gerðust aldrei nein slys. Forsvarsmennirnir eru vonandi komnir í samband við raunveruleikann.
posted by ErlaHlyns @ 18:49  
1 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER