Hugleiðingar konu v. 6.0
 
17. júl. 2008
Könguló, könguló, haltu frá mér fluguló
Stofuglugginn hefur verið galopinn að undanförnu enda hlýtt í veðri og nauðsynlegt að fá inn ferskt loft.

Glugginn hefur verið opinn það lengi að fyrir hann er kominn stór köngulóarvefur. Ég hef enn ekki séð köngulóna sem þar á heima en ég ímynda mér að hún sé stór og með loðnar lappir. Allar átta.

Þar sem ég er ekkert sérlega hrifin af skordýrum var ég að íhuga að leyfa vefnum bara að vera. Köngulóin heldur sig þá í nágrenni hans og varnar öðrum skordýrum inngöngu til mín.

Þegar vinur minn heyrði af þessu plani mínu leist honum ekki á blikuna og sagði mér söguna af því þegar hann leyfði stórum köngulóarvef með loðinni könguló að vera í sínum glugga.

Þetta fannst honum vel til fundið þar til einn daginn sá hann að köngulóin hafði náð vænni fiskiflugu í vefinn. Eftir að þekja fluguna spunaþráðum sínum innbyrti hún hana smátt og smátt, en þó í einni máltíð. Flugan var vel á stærð við köngulóna sem tútnaði út við átið. Kannski er át þó ekki rétta orðið því þetta var öllu líkara en hún sogaði fluguna inn um galopið ginið.

Eftir þetta fjarlægði hann vefinn í snatri og vefráðanda með.

Á meðan ég skrifa þessa færslu hef ég reglulega, of reglulega, litið út um stofugluggann. Enn sé ég enga könguló. Enn veit ég ekki hvað skal gera.
posted by ErlaHlyns @ 00:32  
3 Comments:
  • At 17/7/08 21:36, Blogger ErlaHlyns said…

    Köngulóarvefurinn "minn" er horfinn. Mig grunar að bróðir minn hafi ætlað að gera mér greiða.
    En ég sá feita könguló skammt frá í stórum vef.

     
  • At 18/7/08 04:25, Blogger Björg said…

    Veistu Erla, ég finn einhvern veginn á mér að hún sé flutt yfir í vefinn undir rúminu þínu.. Skríði svo upp þegar allt er orðið hljótt og hjúfri sig upp að þér ;-)

     
  • At 18/7/08 23:06, Blogger ErlaHlyns said…

    Björg: Eitt orð > Ewwwww!

     
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER