Hugleiðingar konu v. 6.0
 
26. júl. 2008
Karlar eru körlum verstir
Konur virðast vera konum verstar í þessu tilviki, sagði Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogsbæjar, í samtali við fréttastofu RÚV vegna umdeildra mannaráðninga bæjarins, eða kvennaráðninga öllu heldur. Oddviti Samfylkingar í bænum, kona, hefur farið mannfólks hæst í gagnrýninni.

Nú hefur Steingrímur J. Sigfússon oftar en ekki sett út á ákvarðanir Geirs H. Haarde. Davíð Oddsson er heldur ekki par hrifinn af Ólafi Ragnari Grímssyni.

Karlar eru körlum verstir?
posted by ErlaHlyns @ 19:15  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER