Hugleiðingar konu v. 6.0
 
2. ágú. 2008
Endalaus e-skuld
Vinsamlega athugið
Innáborgun má ekki vera hærri en fjárhæð á greiðsluseðli.


Ég hefði einmitt haldið að bankinn yrði kátur ef ég vildi borga hærri upphæð. En mér er ekki gert auðvelt fyrir að borga niður skuld mína við e-kortið hraðar en gert er ráð fyrir.

Mánaðarleg afborgun er prósentuhlutfall af skuldinni og því lækkar krónutala greiddrar upphæðar með hverjum mánuði sem líður. Með þessu áframhaldi verð ég enn að borga af þessu þegar ófædd börn mín ganga í hjónaband (sem er aldrei ef þau reynast samkynhneigð og engar lagabreytingar verða gerðar á réttindum homma og lesbía).

Það er víst hægt að greiða þetta hraðar niður með einhverri óhandhægari leið en ég hafði hugsað mér, og næsta skref ef því að finna hana.
posted by ErlaHlyns @ 18:21  
1 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER